Erlent

Björgunarstarfi er lokið í Berlín

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar
Fjölmennt lögreglulið er á vettvangi á Bretscheidplatz-torgi.
Fjölmennt lögreglulið er á vettvangi á Bretscheidplatz-torgi. vísir/epa
Flutningabíll keyrði inn í jólamarkað á Breitscheidplatz torgi í Berlín á áttunda tímanum í kvöld með þeim afleiðingum að níu létust og 45 særðust. 

Markaðurinn er með stærri jólamörkuðum í Berlín en hann er staðsettur á Breitscheidplatz-torgi steinsnar frá Kurfürstendamm, stærstu verslunargötu borgarinnar.

Lögregluyfirvöld í Berlín hafa staðfest að um hryðjuverk hafi verið að ræða. Í flutningabílnum voru tveir menn en sá sem sat í farþegasætinu lést meðan á voðaverkinu stóð. Ökumaður bifreiðarinnar komst lífs af og hefur hann verið handtekinn.

Sjá einnig: Utanríkisráðuneytið hvetur Íslendinga í Berlín til þess að láta vita af sér

Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu og sendiherra Íslands í Þýskalandi hafa ekki borist fregnir af því að neinir Íslendingar séu í hópi særðra.

Yfirvöld hafa hvatt borgarbúa til þess að halda sig innandyra í kvöld.

 

 

Samkvæmt lögregluyfirvöldum er björgunarstarfi á vettvangi lokið en 45 voru fluttir á sjúkrahús í kjölfar árásanna. Rannsókn málsins er þegar hafin og staðfest hefur verið að númeraplata bifreiðarinnar sem notuð var við ódæðið er pólsk. Talið er að flutningabílnum hafi verið stolið af byggingasvæði í Póllandi. 

Götunni Rankestraße hefur verið lokað vegna rannsóknarinnar og hafa lögregluyfirvöld staðfest að þar sé verið að rannsaka möguleg sönnunargögn.

Fréttin var síðast uppfærð kl. 23:50







Grunur leikur á að bifreiðinni hafi verið stolið frá Póllandivísir/epa

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×