Enski boltinn

Bjóddu í sjö mánaða barn á eBay

Charters-fjölskyldan. Hún á eftir að ákveða hvort Eddie litli verði alinn upp við að styðja Man. Utd eða Man. City.
Charters-fjölskyldan. Hún á eftir að ákveða hvort Eddie litli verði alinn upp við að styðja Man. Utd eða Man. City.
Faðir sjö mánaða barns í Manchester hefur ákveðið að bjóða upp fótboltahjarta barnsins. Hvort það verði rautt eða ljósblátt.

Ian Charters er handviss um að sonur hans, Eddie, muni styðja annað hvort Man. Utd eða Man. City er hann stækkar. Sjálfur styður faðirinn Watford en á ekki von á því að sonurinn vilji styðja sama lið.

Stuðningsmenn Man. Utd og Man. City geta nú boðið í barnið. Sá er býður best má ráða því hvort barnið verði alið upp við að styðja rauða eða ljósbláa liðið í Manchester.

„Ég er frá Watford og styð hvorugt liðið. Ég veit að ég mun ekki eiga möguleika á því að fá soninn til að styðja Watford. Ég myndi heldur ekki vilja leggja það á barnið," sagði Ian léttur.

Faðirinn ætlar ekki að stinga peningunum sem koma úr þessu uppátæki inn á sig. Þeir fara allir í gott málefni. Góðgerðarsamtök sem aðstoða foreldra fyrirbura. Sjálfur fæddist Eddie sex vikum fyrir tímann og hefur verið að glíma við veikindi af þeim sökum.

eBay -auglýsingin.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×