Innlent

Bjarni um vantraust: „Ágætis veganesti að fá eitt létt verkefni til að byrja með“

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Forsætis- og fjármálaráðherra
Forsætis- og fjármálaráðherra vísir/stöð 2
„Af öllu því sem hefur gerst í dag held ég að það séu minnstu fréttirnar hve lengi fudnur þingflokks Sjálfstæðisflokksins stóð,“ segir Bjarni Benediktsson í tíufréttum RÚV.

Í kvöld var þess beðið um klukkan sjö að ný ríkisstjórn yrði kynnt til sögunnar. Sigurður Ingi Jóhannsson og Bjarni Benediktsson létu hins vegar bíða eftir sér í um tvær klukkustundir í kjölfar þess að þingflokksfundur Sjálfstæðisflokksins dróst á langinn.

Heimildir herma að einstaka stjórnarþingmenn séu óánægðir með þá niðurstöðu sem fékkst í málið og þá sérstaklega að forsætisráðherrastóllinn félli í skaut Sigurðar Inga Jóhannssonar. Bjarni blés á slíkar fullyrðingar.

„Í upphafi þessa samstarfs sömdum við um ákveðna verkaskiptingu. Þá fékk Framsókn forsætisráðuneytið og við fjármálaráðuneytið. Við viljum ekki stokka upp í ráðuneytunum því nú gjörþekkir hver ráðherra sín mál í sínu ráðuneyti.“

Ágætis veganesti að byrja á að fella vantraust

Álit hafa einnig verið uppi um hvort að nauðsynlegt er að stjórnin sitji áfram til að afgreiða þau mál sem hún á eftir. Forsvarsmönnum hennar hefur verið tíðrætt um afnám hafta en fyrr í dag sagði Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, að þau mál heyrðu algerlega undir Seðlabanka Íslands.

„Það mál er undir minni forystu. Ég hef starfað að því með forsætis- og fjármálaráðuneytinu og Seðlabankanum þar sem ég sit í forsæti og stýri atburðarásinni,“ sagði Bjarni. Sem stendur væri málið í miðri á en framundan væri frumvarp og útboð á komandi vori sem væru nauðsynlegir liðir í afnámi þeirra.

Stjórnarflokkarnir hafa samþykkt að stytta kjörtímabilið um eitt löggjafarþing og verður því líklega kosið fyrir september eða snemma í þeim mánuði. Það veltur þó á því hvernig gengur að koma málum í gegnum þingið.

„Það er aldrei létt verk að framkvæma lýðræðið. Við höfum ítrekað gengið að kjörborðinu frá 2007 til að efla traust til lykilstofnana. Við höfum nú skjótt og með afgerandi hætti brugðist við ákalli um að virkja lýðræðið.“

Fyrir þinginu liggur vantrauststillaga á hina nýju stjórn en Bjarni kvíðir henni ekki. „Það verður ágætis veganesti að fá eitt létt verkefni til að byrja með. Það er alveg fyrirséð hvernig það fer. Við fögnum öllum tækifærum til að rifja upp það góða starf sem þessi stjórn hefur unnið,“ sagði fjármálaráðherra.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×