Innlent

Bjarni greindi forsetanum frá stöðu mála í dag

Heimir Már Pétursson skrifar
Formaður Sjálfstæðisflokksins fundaði með forseta Íslands í dag og gerði honum grein fyrir stöðu mála og þeirri fyrirætlan sinni að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður fyrir lok þessarar viku. Bjarni vill þriggja flokka stjórn með rúman meirihluta.

Bjarni Benediktsson hefur nú haft stjórnarmyndunarumboðið í sex daga. Hann heldur en öllum mögleikum opnum varðandi samstarf við aðra flokka.

Bjarni hefur fundað með formönnum annarra flokka og metið stöðuna með þingflokki sínum. Honum þætti best að það kæmu ekki fleiri en þrír flokkar að ríkisstjórn. Hann telji meirihlut með Viðreisn og Bjatri framtíð og veikan en það málefnin ráði ferðinni.

Ertu að bera víurnar svolítið í Katrínu?

„Mér finnst eðlilegt að við tölum við Vinstri græn líka. Það var snemma ljóst og hefur legið lengi fyrir að það væri kannski mesta bilið að brúa þar. En á hinn bóginn væri það ríkisstjórn sem myndi spanna meiri breidd í pólitíkinni. Og kannski við þær aðstæður sem eru uppi á kjörtímabilinu sem er að hefjast að þá myndi það ekki skaða,“ segir Bjarni.



Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn eru tveir stærstu flokkar á þingivisir/anton brink
Von á formlegum viðræðum í þessari viku

Formlegar stjórnarmyndunarviðræður eru enn ekki hafnar en Bjarni segir að þær hljóti að hefjast í þessari viku.

„Það gæti hrokkið í það hvenær sem er ef ég og viðkomandi komumst að þeirri niðurstöðu að við séum tilbúin að láta á það reyna. En ég ætla líka að vera búinn að gera forsetanum grein fyrir því hvernig ég met stöðuna,“ sagði Bjarni að loknum ríkisstjórnarfundi. Hann hitt síðan forsetann eftir hádegi í dag.

Það er greinilegt að Bjarni hefur áhuga á samstarfi við Vinstri græn en Katrín Jakobsdóttir formaður VG hefur ekki tekið vel í slíkt samstarf opinberlega og lýst vilja til að mynda vinstristjórn. Það er því ekki sjálfgefið að Bjarna takist að mynda ríkisstjórn.

„Það er ekkert gefið í þessu. Ég og minn þingflokkur erum ekki að hugsa um það að mynda bara einhvern veginn stjórn til þess eins að mynda stjórn,“ segir Bjarni.

Það þurfi að mynda sterka ríkisstjórn til að taka á stöðunni á vinnumarkaði og það þurfi að finna leiðir til að setja fjármuni í uppbyggingu innviða án þess að fara framúr sér í nýjum útgjöldum.

„Að mynda sterka stjórn er markmiðið og ég er enn vongóður um að það geti tekist,“ segir formaður Sjálfstæðisflokksins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×