Golf

Birgir Leifur vann titlana sex á rúmlega tvöfalt lengra tímabili

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Birgir Leifur var eðlilega léttur eftir sigurinn á heimavelli í gær.
Birgir Leifur var eðlilega léttur eftir sigurinn á heimavelli í gær. vísir/daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, fagnaði sjötta Íslandsmeistaratitli sínum í höggleik á heimavelli í Leirdalnum um helgina, en með sigrinum jafnaði hann árangur ÚlfarsJónssonar og BjörgvinsÞorsteinssonar.

Björgvin og Úlfar unnu báðir sex titla á sínum ferlum, en Úlfar er landsliðsþjálfari í dag. Báðir unnu titlana sex á sjö ára tímabili, en Birgir Leifur vann sína sex á 18 ára tímabili. Kemur það vissulega til vegna þess að Birgir Leifur hefur sinnt atvinnumannaferlinum vel og mikið.

Björgvin var sá fyrsti sem vann sex titla, en þann fyrsta vann hann 18 ára gamall árið 1971. Loftur Ólafsson hirti af honum titilinn árið eftir, en því fylgdu fimm titlar í röð hjá Björgvin sem er hvergi nærri hættur og var með á sínu 53. Íslandsmóti um helgina.

Úlfar var 17 ára gamall þegar hann varð fyrst Íslandsmeistari árið 1986, en hann bætti við öðrum strax árið eftir. Sigurður Sigurðsson stöðvaði sigurhrinu Úlfars í eitt ár, en hann vann svo Íslandsmótið næstu fjögur árin. Úlfar var svo kjörinn kylfingur aldarinnar.

Birgir Leifur með fjölskyldunni eftir sigurinn í gær.vísir/daníel
Birgir Leifur var tvítugur þegar hann varð fyrst Íslandsmeistari árið 1996, en titilinn vann hann svo ekki aftur fyrr en 2003. Hann varð meistari aftur árið eftir og bætti svo við fjórða titlinum 2010. Birgir Leifur vann fimmta titilinn á Korpu í fyrra og jafnaði við þá Úlfar og Björgvin með sjötta titlinum í gær.

Annar merkur kylfingur sem vert er að nefna er MagnúsGuðmundsson úr GA. Hann á að baki fimm Íslandsmeistaratitla (1958, 1963, 1964, 1965 og 1966), og var sá maður sem átti metið yfir lægsta skorið á Íslandsmóti í höggleik þar til í fyrra. Magnús vann einn titla sinna á tíu höggum undir pari, en það met jafnaði Birgir Leifur í fyrra.

Birgir Leifur fékk gullið tækifæri til að bæta metið á heimavelli í gær, en missti þriggja metra pútt fyrir pari á 18. flöt og þurfti að sætta sig við skolla. Hann lauk leik á tíu höggum undir pari og deilir metinu með Magnúsi.

Birgir Leifur er ekki nema 38 ára gamall og hefur sjaldan verið betri. Það virðist alveg morgunljóst að hann á eftir að bæta öðrum titli í safnið og verða sá sigursælasti frá upphafi. Sjálfur stefnir hann að því, en eftir sigurinn á Korpu í fyrra sagðist hann ætla að vinna þann sjötta á heimavelli í ár og Birgir Leifur stóð við stóru orðin.

Sexföldu meistararnir:

Björgvin Þorsteinsson

1971 (18 ára)

1972 Loftur Ólafsson

1973

1974

1975

1976

1977

Úlfar Jónsson

1986 (17 ára)

1987

1988 Sigurður Sigurðsson

1989

1990

1991

1992

Birgir Leifur Hafþórsson

1996 (20 ára)

2003

2004

2010

2013

2014

Úlfar Jónsson er landsliðsþjálfari í dag.vísir/daníel

Tengdar fréttir

Meistararnir stefna á atvinnumennsku

Birgir Leifur Hafþórsson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir urðu um helgina Íslandsmeistarar í höggleik. Birgir Leifur varð meistari í sjötta sinn en hann hafði mikla yfirburði í karlaflokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×