Golf

Birgir Leifur með góðan hring í Finnlandi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Birgir Leifur í eldlínunni.
Birgir Leifur í eldlínunni. vísir/getty
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er í átjánda sæti fyrir síðasta hringinn á Gant Open mótinu í Finnlandi eftir þriðja hring í dag.

Ekki eru allir komnir í hús eftir þriðja hringinn og gæti því breyst í hvaða sæti Birgir Leifur verður í eftir daginn, en mótið er hluti af Áskorendamótaröðinni.

Birgir Leifur lék á 69 höggum í dag, en hann bætti sig um fjögur högg frá hring númer tvö. Þá spilaði hann á tveimur höggum yfir pari, en í dag spilaði hann á tveimur undir.

Birgir fékk fjóra hugla og einn örn á hringnum, en einnig fékk hann einn skramba.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×