Innlent

Bílaleigubíllinn laskaður eftir akstur á Reykjanesinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bíllinn var dreginn af bílastæði í Hlíðasmára í Kópavogi í hádeginu á þriðjudag.
Bíllinn var dreginn af bílastæði í Hlíðasmára í Kópavogi í hádeginu á þriðjudag. vísir
Rauði Kia Rio-bíllinn, sem grænlensku skipverjarnir sem grunaðir eru um aðild að dauða Birnu Brjánsdóttur höfðu á leigu, var laskaður að framanverðu þegar honum var skilað til Bílaleigu Akureyrar í Hafnarfirði eftir hádegi laugardaginn sem hún hvarf. 

Þetta þykir lögreglu benda til þess að bílnum hafi verið ekið um grófa vegi en ummerki þess efnis má sjá undir bílnum. Bendir ýmislegt til þess að bílaleigubíllinn hafi dregið kviðinn. Meðal annars vegna þessa var björgunarsveitum upplagt að leita sérstaklega að ummerkjum við vegaslóða í ítarlegri leit sinni um helgina.

Beindu spjótum að vegslóðum

Um tíma var umfangsmikil leit á svæðinu nærri fjallinu Keili. Vel þekkt er að slóðin að Keili er afar stórgrýttur og eiginlega ekki fyrir venjulegan fólksbíl að aka án óhljóða undan bílnum. Fjölmargir svipaðir vegslóðar eru á Reykjanesinu.

Tæplega 800 björgunarsveitarkarlar- og konur komu að leitaraðgerðum um helgina þar sem samanlagt voru gengnir fleiri þúsund kílómetrar. Leitað var að Birnu og vísbendingum sem tengjast hvarfi hennar. Áhöfnin á TF-LÍF fann svo Birnu um klukkan eitt í gær.

Þá bendir ýmislegt til þess að skipverjarnir hafi þrifið Kia Rio bílinn. Fram hefur komið að lögregla fann blóð í bílnum sem síðan hefur komið í ljós með DNA-rannsókn að var úr Birnu. 

Á þeim sólarhring sem skipverjarnir höfðu bílinn í sinni umsjá var honum ekið um 300 kílómetra. Það svarar til þess að aka frá Reykjavík á Sauðarkrók. Eða tvisvar fram og til baka frá Reykjavík í Borgarnes svo dæmi séu tekin til að setja vegalengdina í eitthvað samhengi.

Hættir að leita þangað til næst

Formlegum leitaraðgerðum björgunarsveitanna lauk í gærkvöldi og sagði Þorsteinn G. Gunnarsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, við Vísi í gærkvöldi að hann liti svo á að þætti björgunarsveitanna væri lokið. Þar til beðið sé um aðstoð að nýju.

Samkvæmt heimildum Vísis telur lögregla vel mögulegt að mennirnir tveir hafi losað sig við einhverjar flíkur á laugardeginumog var af þeim ástæðum sérstaklega leitað eftir karlmannsfatnaði af hvaða tegund sem er við leitina um helgina.

Polar Nanoq, grænlenski togarinn sem mennirnir vinna á, lét úr höfn um klukkan 20 daginn sem Birna hvarf.



Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×