Sport

Besti árangur á Evrópumóti frá upphafi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hrafnhildur Lúthersdóttir vann sögulegt silfur á EM í dag.
Hrafnhildur Lúthersdóttir vann sögulegt silfur á EM í dag. Vísir/Stefán
Hrafnhildur Lúthersdóttir náði sögulegum árangri þegar hún vann til silfurverðlauna í 100 m bringusundi á EM í 50 m laug í dag.

Eygló Ósk Gústafsdóttir vann tvenn bronsverðlaun á EM í 25 m laug seint á síðasta ári og voru það fyrstu verðlaun íslenskrar sundkonu á stórmóti.

Örn Arnarson er sá eini þess fyrir utan sem hefur unnið verðlaun á stórmóti í sundi en hann vann bæði silfur og brons á HM 2001 í Japan auk fjölda verðlaun á EM í 25 m laug.

Eygló Ósk Gústafsdóttir og Anton Sveinn McKee synda til úrslita á EM á morgun og Hrafnhildur hefur keppni í undanrásum í 200 m bringusundi á morgun.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×