Golf

Bernhard Langer sigrar enn á ný á öldungamótaröðinni

Bernhard Langer hefur verið frábær í ár.
Bernhard Langer hefur verið frábær í ár. Getty
Bernhard Langer sigraði á sínu fjórða móti á árinu á bandarísku öldungamótaröðinni en hann lék best allra á Opna Dick's Sporting Goods mótinu sem kláraðist um helgina. Hann lék hringina þrjá á En-Joie vellinum á 18 höggum undir pari en Woody Austin og Mark O'Meara deildu öðru sætinu á 17 höggum undir pari.

Langer hefur unnið á 23 öldungamótum á ferlinum en í mótinu um helgina lék hann gallalaust golf og fékk ekki einn einasta skolla.

Spilamennska Langer hefur vakið mikla athygli í ár en hann hefur endað meðal tíu efstu manna í 15 mótum af 16 á öldungamótaröðinni. Þá var hann í toppbaráttunni á Masters fyrr á árinu og telja margir að að Langer eigi að vera í Ryderliði Evrópu í haust.

Ryder-fyrirliði evrópska liðsins, Paul McGilnley, hefur gefið það út að það sé ekki útilokað að hann velji kylfing af öldungamótaröðinni í liðið en á henni eru vellirnir styttri og keppnisdagarnir aðeins þrír. Hann segir þó að það sé mjög ólíklegt enda séu margir góðir kylfingar af Evrópumótaröðinni sjálfri sem hann sé að hugsa um sem ekki hafa náð að tryggja sér sæti í liðinu nú þegar.

Langer hefur sjálfur gefið út að hann sé nógu góður til þess að berjast við bestu kylfinga Bandaríkjanna á Gleneagles í haust en hann er svo sannarlega að gefa McGinley eitthvað til þess að hugsa um þessa dagana með frammistöðu sinni á golfvellinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×