Innlent

Beið eftir strætó sem var stopp

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Vagninn sem gengur austur á Selfoss leggur upp frá skiptistöðinni í Mjódd.
Vagninn sem gengur austur á Selfoss leggur upp frá skiptistöðinni í Mjódd. Vísir/Vilhelm
„Ég tók bara Strætó upp í Mjódd og beið svo þar eftir vagninum á Selfoss í dágóða stund áður en ég tékkaði á síðunni hjá Strætó. Þá sá ég að þeir sem keyra á Selfoss voru í verkfalli en hinir sem keyra í bænum voru í lagi,“ segir Gunnar Már Hauksson um hrakfarir þær sem hann lenti í síðasta dag aprílmánaðar þegar félög Starfsgreinasambandsins (SGS) hófu sínar fyrstu verkfallsaðgerðir víða um land.

Gunnar Már Hauksson
Gunnar Már er tekinn tali í Fréttablaðinu í dag í tengslum við umfjöllun um áhrif yfirstandandi verkfallsaðgerða á daglegt líf fólks.

Gunnar Már sat við lokaritgerðarsmíði í fjölmiðlafræði í Þjóðarbókhlöðunni yfir daginn, en fékk svo að reyna verkfallið á eigin skinni þegar hann ætlaði heim til sín austur fyrir fjall. 

Efni ritgerðarinnar segir hann að sé uppbyggileg fréttamennska. Hann notaði sér hins vegar samfélagsmiðla til að greina frá raunum sínum og skrifaði á Twitter: 

„Tók strætó upp í Mjódd til að taka strætó á Selfoss. Strætóbílstjórar sem keyra á Selfoss eru í verkfalli. #fml #verkfall“

Verkfallsaðgerðir félaga SGA á landsbyggðinni halda áfram á morgun og hinn takist ekki samningar, en núna segist Gunnar betur undir þær búinn og býst ekki við að grípa aftur í tómt á biðstöðinni, hvort heldur sem það verður fyrir austan eða í Mjódd.

Það hafi hins vegar orðið honum til bjargar fyrir helgi að systir hans var á leið á Selfoss síðar um kvöldið. 

„Þannig að þetta bjargaðist allt saman. En auðvitað frekar pirrandi að lenda í þessu.“

Fréttablaðið leitar að sögum sem tengjast verkfallsaðgerðum. Láttu okkur endilega vita af skemmtilegum, eða miður skemmtilegum, sögum með því að senda okkur póst á ritstjorn@frettabladid.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×