Erlent

Baneitruð í bönununum

Langar þig í banana? Hér sjáum við skjáskot af fréttinni á vef The Guardian.
Langar þig í banana? Hér sjáum við skjáskot af fréttinni á vef The Guardian. skjáskot af fréttinni á vef The Guardian.
Fjölskylda þurfti að flýja heimili sitt í London um helgina þegar fjölskyldufaðirinn kom auga á baneitraða kónguló í bananaknippi sem sent hafði verið til fjölskyldunnar.

Kóngulóin sem um ræðir er ein eitraðasta og árásargjarnasta kónguló heims, brasilíska flökkukóngulóin.

Maðurinn setti bananaknippið í ávaxtaskálina og klemmdi þar eina löpp kóngulóarinnar en hún náði að sleppa. Hann hringdi í matvöruverslunina Waitrose, þaðan sem sendingin kom.

Starfsmaður Waitrose kom á heimilið en þá var kóngulóin horfin. Að lokum kom meindýraeyðir og fangaði kóngulóna en fjölskyldan treysti sér ekki til þess að snúa aftur á heimili sitt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×