Erlent

Ban Ki-moon segir viðræðurnar á COP21 þær erfiðustu sem hann hefur komið að

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Ban Ki-moon segist hafa tekið þátt í mörgum flóknum samningaviðræðum en viðræður á Loftlagsráðstefnunni í París séu þær erfiðustu.
Ban Ki-moon segist hafa tekið þátt í mörgum flóknum samningaviðræðum en viðræður á Loftlagsráðstefnunni í París séu þær erfiðustu. Vísir/Getty
Ban Ki-moon aðalritari Sameinuðu þjóðanna segir að samningaviðræðurnar á Loftlagsráðstefnunni í París séu þær flóknustu og erfiðustu sem hann hafi nokkurn tíma tekið þátt í.

Hann segir að enn sé ágreiningur á milli þeirra tæplega 200 ríkja sem taka þátt í ráðstefnunni en segir að það sé mikilvægt að þau leggi til hliðar hagsmuni sína svo hægt sér að komast að sameiginlegri niðurstöðu.

Sjá einnig: Stöð 2 á COP21: „Við höfum bara 15 ár“

„Þetta er ekki augnablikið til þess að tala um hagsmuni einstakra ríkja. Góð hnattræn lausn mun styðja góðar lausnir heima fyrir,“ sagði Ban Ki-moon. „Ég kalla á ríki heimsins til þess að komast að lokaniðurstöðu fyrir mannkynið allt.“

„Ég hef tekið þátt í mörgum erfiðum samningaviðræðum en það er alveg sama hvaða mælikvarða er beitt, þessar samningaviðræður eru þær erfiðustu, en jafnframt þær mikilvægustu fyrir mannkynið,“ bætti hann við.

Sjá einnig: Stöð 2 á COP21: Ísland leiðarvísir í orkubúskap og landgræðslu

Ban hélt ræðuna á lokaspretti ráðstefnunnar sem staðið hefur yfir í tvær vikur en mun ljúka um helgina. Fulltrúar þeirra ríkja sem taka þátt hafa reynt að semja um lagalega bindandi alþjóðasamning sem fær ríki heimsins til þess að draga úr kolefnisútblæstri.

Unnið fram á nótt

Um 150 leiðtogar, þar á meðal Barack Obama og Xi Jinping sem fara fyrir tveimur helstu útblástursríkjum jarðarinnar, Bandaríkjunum og Kína, mættu á ráðstefnuna en létu eftir sviðið fyrir samningamenn og sérfræðinga sem sjá um viðræðurnar.

„Við erum alveg að koma að enda vegsins,“ sagði Laurent Fabius, utanríkisráðherra Frakklands og forseti ráðstefnunnar, sem var vakandi í alla nótt til þess að liðka fyrir samningaviðræðunum.

Sjá einnig: Bandaríkin til liðs við ESB-ríkin og fleiri

Lord Stern, hagfræðingur og sérfræðingur í loftlagsmálum segir að andrúmsloftið sé mun betri á þessari loftlagsráðstefnu en þeim sem áður hafa farið fram. „Ég held að hér geri allir sér grein fyrir því að mannkynið standi frammi fyrir mikilli hættu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×