Lífið

Bam Margera birtir mynd af Gísla Pálma á Instagram

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Bam Margera eftir slaginn.
Bam Margera eftir slaginn. vísir/stóli
Það ætti að vera ferskt í minni flestra er landsþekktir tónlistarmenn kýldu Bam Margera á Secret Solstice hátíðinni í sumar. Bandaríkjamaðurinn man allavega eftir því en hann birtir mynd af Gísla Pálma á Instagram síðu sinni.

„Þessi sló mig kaldan meðan ég var að tala við einhvern annan og horfa í hina áttina,“ segir Bam í myndatexta við myndina. Gísla Pálma kallar hann Vanilla Iceland. Hafir þú kynnst upphafi tíunda áratugarins þá nærðu líklega tengingunni þar.

Málið varð að heljarinnar húllumhæi þar sem aðilar þess létu stór orð falla en að endingu sleppti Bam því að kæra og hvarf af landi brott.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×