Baldwin fékk ráð hjá Dr. Phil 27. apríl 2007 11:18 Dr. Phil lá ekki á liði sínu í erfiðleikum stórleikarans. MYND/Getty Images
Bandaríski kvikmyndaleikarinn Alec Baldwin mun biðjast afsökunar í bandarísku sjónvarpi í dag vegna harðorðra ummæla sem hann viðhafði við dóttur sína. Sjónvarpssálfræðingurinn Dr. Phil McGraw segir að leikarinn fengið ráðleggingar hans vegna málsins. Skammarræðuna skildi Alec eftir á talhólfi dótturinnar og hún rataði inn á internetið í síðustu viku. CNN greinir frá innihaldi viðtalsins sem tekið var upp á ABC sjónvarpsstöðunni. Það verður sýnt í dag. Þar biðst Alec afsökunar á því að kalla dótturina „hugsunarlaust lítið svín." Alec segir einnig í viðtalinu að hann sé tilbúinn að hætta störfum sem leikari eftir 30 ára starf. Í viðtali við Larry King bauð Dr. Phil Alec og fjölskyldunni ráðgjöf. Hann sagði Alec hafa gefið leyfi fyrir því að hann segði frá því að þeir hefðu átt langt spjall. Sálfræðingurinn sagðist einnig hafa talað við Kim Basinger fyrrverandi eiginkonu leikarans. Alec og Kim hafa átt í biturri forræðisdeilu í þrjú ár. Hann hefur tímabundið verið sviptur umgengnisrétti samkvæmt heimildum TMZ.com og er gert að mæta fyrir rétt 4. maí næstkomandi. Leikarinn er að ljúka við bók um skilnaði sem gefin verður út í september. Hann segist vilja skoða orsakir samskiptaleysis foreldra við börn sín. Baldwin sagði meðal annars í umræddum skilaboðum til dóttur hans. „Þú hefur móðgað mig í síðasta skipti," - „Mér er skítsama þótt þú sért ellefu ára, eða tólf ára, eða barn, og að mamma þín er hugsunarlaus og óþolandi," segir hann. Og hann kallar dóttur sína „hugsunarlaust lítið svín." Alec segist hafa verið vonsvikinn og reiður þegar Ireland svaraði ekki símtalinu sem var fyrirfram ákveðið. Hann segist hafa tekið reiði sína út á vitlausri manneskju.
Menning Mest lesið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Fleiri fréttir „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Sjá meira