Viðskipti innlent

Bæta við bátum og fjölga skoðunarferðum

Svavar Hávarðsson skrifar
Tíu bátar verða gerðir út hjá Norðursiglingu í sumar.
Tíu bátar verða gerðir út hjá Norðursiglingu í sumar. Mynd/Norðursigling
Norðursigling á Húsavík bætir tveimur bátum við flota hvalaskoðunarbáta fyrirtækisins í sumar. Það skref dugar þó ekki eitt til að mæta aukinni eftirspurn ferðafólks og því verður ferðum einnig fjölgað umtalsvert á þeim bátum sem fyrir eru.

„Norðursigling hefur boðið skipulagðar hvalaskoðunarferðir í rúm 20 ár og tekist hefur að vaxa með þessari þróun og halda í við fjölgunina,“ segir Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Norðursiglingar á Húsavík, og bætir við að tveir nýir bátar komi inn í flota Norðursiglingar til viðbótar við þá átta sem fyrir voru. Í flotanum í sumar verða því tíu bátar; flestir eru þeir gamlir íslenskir eikarbátar sem hafa verið endursmíðaðir og svo er um þá tvo nýju. Eins hefur Norðursigling vakið athygli fyrir rafvæðingu báta sinna – fyrst fyrirtækja.

Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær, þá er það spá Samtaka ferðaþjónustunnar að viðskiptavinum hvalaskoðunarfyrirtækjanna í landinu, sem voru tólf í fyrra, muni fjölga um vel rúmlega fimmtíu þúsund manns. Spáð er að gestir fyrirtækjanna muni verða tæplega 327 þúsund, en þeir voru 272 þúsund í fyrra.

Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Norðursiglingar
Fyrirtækjum í hvalaskoðun, í grein sem var ekki spáð bjartri framtíð fyrir nokkrum misserum, hefur fjölgað í tólf og gera þau út frá sex svæðum á landinu.

„Við verðum líka að fjölga ferðum, svo við náum að auka töluvert við okkar framboð – bæði með fjölgun báta og ferða. Tímabilið fer vel af stað, en það sem er ekki síst mikilvægt fyrir okkur, og á fleiri stöðum á landsbyggðinni, er að ferðamönnum er að fjölga á jaðartímum. Það styrkir þessi fyrirtæki við að bjóða sína þjónustu yfir lengri tíma og að geta boðið upp á heilsársstörf í ferðaþjónustu,“ segir Guðbjartur en gestir Norðursiglingar í fyrra voru rétt um sextíu þúsund.

Norðursigling er stærst fjögurra hvalaskoðunarfyrirtækja á Húsavík, og umsvifin setja orðið mikinn svip á bæjarbraginn. Guðbjartur segir þróunina vera þá að sífellt meiri eftir­spurn sé eftir ævintýraferðum og hvalaskoðun sé ein tegund ferða sem tilheyra þeirri upplifun.

Guðbjartur veit ekki nákvæmlega hversu margir ferðamenn heimsækja Húsavík sérstaklega vegna hvalaskoðunar, en það sé óumdeilt að töluverður fjöldi ferðamanna sækir sérstaklega á þá staði þar sem slíkar ferðir eru í boði. Norðausturland sé vel í sveit sett til að taka á móti gestum – með vinsæla ferðamannastaði sem hafa mikið aðdráttarafl, eins og til dæmis Mývatn, Dettifoss og Ásbyrgi.

„Fleira kemur til en hvalaskoðunin ein og sér. Hér höfum við hvalasafnið, sem mikill akkur er í og svo er Rannsóknarsetur Háskóla Íslands hér á Húsavík. Það eru því mikil samlegðaráhrif í þessu öllu sem hér er,“ segir Guðbjartur en við setrið eru stundaðar rannsóknir á sjávarspendýrum, einkum hvölum, auk rannsókna í ferðaþjónustu.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 28. apríl


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×