Innlent

Bændur vilja verndartolla

Höskuldur Kári Schram skrifar
Íslenskur landbúnaður getur ekki þrifist innan Evrópusambandsins án verndartolla að mati Bændasamtakanna sem vilja að Ísland fái undanþágu frá reglum sambandsins. Formaður neytendasamtakanna segir að óbreyttir tollar muni þurrka út ávinning neytenda af aðild.

Verslun með landbúnaðarvörur er án tolla á innri markaði Evrópusambandsins og því gæti matvöruverð lækkað umtalsvert við inngöngu íslands í sambandið. Það er að segja ef tollar verða felldir niður.

Bændasamtökin telja hins vegar mikilvægt að viðhalda verndartollum. Sérstaklega var minnst á þetta atriði á rýnifundum um landbúnaðarmál í Brussel í síðasta mánuði.

„Við höfum gert það alveg skýrt að við krefjumst þess að það verði áfram heimilt að leggja tolla á búvörur, komi til þess að hér verði ESB aðild," segir Erna Bjarnadóttir, fulltrúi BÍ í samningahóp um landbúnað.

Finnar sóttu um svipað ákvæði þegar þeir gengu í Evrópusambandið en á það var ekki fallist. Finnskur landbúnaður er hins vegar skilgreindur sem heimskautalanbúnaður en það felur í sér ákveðna framleiðslustyrki eða niðurgreiðslu. Það eitt og sér að mati bændasamtakanna myndi ekki duga hér á landi.

„Þær heimildir sem við sjáum innan sameiginlegu landbúnaðarstefnunar og þó við bættum við þessum verkfærum sem Finnar nota þá myndu þær ekki duga fyrir íslenskan landbúnað í dag," segir Erna.

Jóhannes Gunnarsson, formaður neytendasamtakanna, segir mikilvægt að gæta hagsmuna neytenda en ekki eingöngu bænda.

„Ef að Ísland verður aðili að Evrópusambandinu, ef að þjóðin ákveður það og ef það er einvher sérsamningur um óbreytta tolla frá því sem nú er, þá er að sjálfsögðu verið að taka verulegan ávinning neytenda af hugsanlegri Evrópusambandsaðild frá þeim," segir hann.

Íslenskir bændur eigi ekki að vera hræddir við samkeppni.

„Við erum með góðar landbúnaðarvörur, ég tala ekki um það ef við gerðum þær enn betri með áherslu á lífrænan landbúnað, þá opnast lúxusmarkaðir t.a.m. í Evrópu vegna þess að það verða engir tollar lagðir á þessar vöru inn í eErópu heldur."







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×