Handbolti

B-landsliðið fær kærkomna leiki

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Óðinn Þór Ríkharðsson er í B-landsliðinu.
Óðinn Þór Ríkharðsson er í B-landsliðinu. vísir/stefán
B-landslið karla í handbolta spilar tvo vináttulandsleiki við Grænland um næstu helgi.

Leikirnir fara fram föstudaginn 13. janúar klukkan 20:00 og laugardaginn 14. janúar klukkan 18:00. Báðir leikirnir fara fram í TM-Höllinni í Garðabæ.

Einar Guðmundsson stýrir liðinu og hefur hann valið 14 leikmenn fyrir þetta verkefni. Liðið æfir á miðvikudag og fimmtudag.

Leikmannahópinn er þannig skipaður:

Markverðir:             

Ágúst Elí Björgvinsson, FH

Grétar Ari Guðjónsson, Haukar

Aðrir leikmenn:

Anton Rúnarsson, Valur

Arnar Birkir Hálfdánsson, Fram

Ágúst Birgisson, FH

Árni Bragi Eyjólfsson, Afturelding

Daníel Þór Ingason, Haukar

Einar Sverrisson, Selfoss

Elvar Ásgeirsson, Afturelding

Elvar Örn Jónsson, Selfoss

Gunnar Malmquist Þórsson, Afturelding

Kristján Orri Jóhannsson, Akureyri

Óðinn Þór Ríkharðsson, FH

Þráinn Orri Jónsson, Grótta




Fleiri fréttir

Sjá meira


×