Handbolti

Auðvelt hjá Veszprém

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron og Laszlo Nagy.
Aron og Laszlo Nagy. vísir/epa
Aron Pálmarsson og félagar í Veszprém völtuðu yfir lið Váci KSE í úrslitakeppni ungverska handboltans í dag.

Lokatölur 21-33 en Veszprém leiddi frá upphafi leiks.

Veszprém er búið að vinna alla fimm leiki sína í sex liða úrslitakeppninni en er samt í öðru sæti.

Szeged er nefnilega búið að vinna alla sex leiki sína en úrslitaleikirnir um titilinn verða klárlega á milli þessara félaga.

Aron Pálmarsson skoraði ekki í dag og líklegt að hann hafi fengið að hvíla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×