Viðskipti innlent

Atvinnuleysi mælist 3,8 prósent

ingvar haraldsson skrifar
Atvinnuleysi í október var 3,8 prósent í október.
Atvinnuleysi í október var 3,8 prósent í október. Mynd/Arnþór
Atvinnuleysi í október nam 3,8 prósentum og hefur lækkað um 1,2 prósentustig frá því október 2014 samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands.

189.400 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í október 2015, sem jafngildir 81% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 182.200 starfandi og 7.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78%. Samanburður mælinga fyrir október 2014 og 2015 sýnir að atvinnuþátttaka minnkaði um 0,8 prósentustig og hlutfall starfandi fólks stóð nánast í stað.

Þá var árstíðarleitðrétt atvinnuleysi 4 prósent. „Þegar horft er til síðustu sex mánaða þá sýnir leitni vinnuaflstalna að atvinnuleysi stendur í stað og á það raunar við um allar tölur um vinnuafl. Þróun síðustu 12 mánaða sýnir þó að atvinnuleysi hefur lækkað um 0,3 prósentustig, hlutfall starfandi aukist um 0,5 stig og atvinnuþátttaka um 0,3,“ segir í frétt á vef Hagstofunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×