Erlent

Átu höfuð nýbura

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Mennirnir tveir í haldi lögreglu.
Mennirnir tveir í haldi lögreglu. vísir/afp
Lögreglan í Pakistan hefur handtekið tvo menn vegna gruns um að þeir hafi lagt sér lík nýbura til munns. Höfuð annars barnsins fannst á heimili þeirra. Nágrannar mannanna höfðu kvartað undan slæmri lykt mannanna og komst lögreglan þannig á slóðir þeirra.

Mennirnir tveir eru bræður, þrjátíu og þrjátíu og fimm ára gamlir og búa þeir í Punjap héraði.

Annar bróðirinn hefur játað að hafa eldað og borðað lík barnsins, sem þeir rændu úr kirkjugarði samkvæmt fréttastofunni Sky.

Báðir voru þeir handteknir árið 2011, en þeir höfðu þá grafið upp meira en hundrað lík úr kirkjugarði og lagt sér til munns. Bræðurnir hafa báðir setið í fangelsi en var þeim sleppt úr haldi á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×