Enski boltinn

Aston Villa enn taplaust eftir sigur á Hull | Úrslit dagsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Mynd/Vísir
Góð byrjun Aston Villa á tímabilinu hélt áfram í dag með 2-1 sigri á Hull City Tigers á heimavelli. Aston Villa er því taplaust eftir fyrstu þrjá leiki tímabilsins.

Gabriel Agbonlahor kom heimamönnum yfir með aðeins öðru marki sínu á Villa Park í síðustu nítján leikjum og stuttu síðar bætti austurríski sóknarmaðurinn Andreas Weimann við öðru marki Aston Villa.

Hull setti meiri pressu á Aston Villa í seinni hálfleik og náði að minnka muninn þegar korter var til leiksloka. Var þar að verki króatíski framherjinn Nikila Jelavic en lengra komust gestirnir ekki og lauk leiknum með 2-1 sigri Aston Villa.

Aston Villa situr í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir leiki dagsins með sjö stig á meðan Hull situr í því áttunda.

Úrslit dagsins:

Aston Villa 2-1 Hull City Tigers

Tottenham 0-3 Liverpool




Fleiri fréttir

Sjá meira


×