Lífið

Ástin í loftinu hjá Ágústu Evu og Aroni Pálmars

Samúel Karl Ólason skrifar
Aron Pálmarsson og Eva Ágústa Erlendsdóttir.
Aron Pálmarsson og Eva Ágústa Erlendsdóttir. Vísir/EPA/VALLI
Svo virðist sem ástin blómstri hjá nýjasta ofurpari Íslands en handboltakappinn Aron Pálmarsson og leik- og söngkonan Ágústa Eva Erlendsdóttir nutu lífsins á snekkju í Ungverjalandi á dögunum.

Aron birti meðfylgjandi myndband af snekkjunni fyrir um viku síðan. Þau voru þá stödd á Balaton vatninu í Ungverjalandi sem er stærsta vatn Mið-Evrópu. Aron spilar með MVM Veszprém KC í Ungverjalandi.

Ágústa Eva birti síðan mynd af fótum þeirra fram á stefni snekkjunnar. Myndinni fylgdi orðið „LUV“.

Mjez @agustaeva

A video posted by aronpalm (@aronpalm) on

LUV

A photo posted by Agusta Eva Official (@agustaeva) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×