Viðskipti innlent

Ástandið í Úkraínu gæti haft neikvæð áhrif á sölu makríls

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Ástandið í Úkraínu gæti haft neikvæð áhrif á sölu íslenskra fyrirtækja á makríl til landsins þótt þessi áhrif hafi ekki enn komið fram, að sögn sölustjóra Iceland Seafood. Tíu prósent heildarafla makríls sem er veiddur í efnahagslögsögunni eru flutt til Úkraínu. 

Aðeins þorskurinn skilar meiru

Makríllinn er flökkustofn sem kom eins og happdrættisvinningur inn í íslenska efnahagslögsögu. Makrílveiðar Íslendinga á árinu 2011 skiluðu þjóðarbúinu meira en 25 milljörðum króna og 26 milljörðum króna árið 2012.

Þegar útflutningsverðmæti einstakra fisktegunda er skoðað sést að síðastliðin ár hefur aðeins þorskurinn skilað þjóðarbúinu meiri tekjum. Það er því ljóst að miklir hagsmunir eru fyrir íslensk útgerðarfyrirtæki og þjóðarbúið í heild sinni að sala á makrílafurðum gangi áfallalaust fyrir sig.

Úkraína er einn mikilvægasti markaður Íslendinga fyrir uppsjávarfisk eins og síld, loðnu og makríl. Frá því var greint í Morgunblaðinu í dag að óvissa sé í sölu á makrílafurðum vegna ástandsins í Úkraínu og tafa við útgáfu innflutningskvóta í Nígeríu. Innflutningskvótar voru gefnir út í Nígeríu um helgina svo það er ekki lengur í hindrun í innflutningi makríls þangað.

Iceland Seafood er einn stærsti einstaki útflutningsaðili makríls hér á landi. Teitur Gylfason sölustjóri fyrirtækisins  segir að enn sem komið er hafi ástandið í Úkraínu ekki haft bein áhrif á sölu makríls til landsins en tíu prósent af heildarafla makríls fara til Úkraínu. 

Fara varlega í að senda vörur sem ekki eru staðgreiddar

„Óróinn í Úkraínu er fyrst og fremst bundinn við tvö austustu héruðin, Luhansk og Donetsk. Lífið annars staðar í Úkraínu gengur sinn vanagang og allar verslanir eru fullar af vörum o.s.frv. En því er ekki að neita að við förum varlega í að senda vöru, sem ekki er staðgreidd, inn á þennan markað meðan ástandið er eins og það er. Meðan ófriðurinn varir,“ segir Teitur. 

Teitur segir að Iceland Seafood muni hugsanlega fara fram á staðgreiðslu við sölu á makrílafurðum til úkraínskra fyrirtækja í einhverjum tilvikum til að verja hagsmuni sína. 

„Bæði munum við fara fram á staðgreiðslu og svo förum við mjög varlega í að lána mönnum þarna þó svo að þeir hafi að sjálfsögðu mikinn styrk frá Vesturlöndum eins og er.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×