Viðskipti innlent

Ásgeir Helgi nýr eigandi hjá Atlas lögmönnum

Atli Ísleifsson skrifar
Ásgeir Helgi Jóhannsson.
Ásgeir Helgi Jóhannsson. Atlas lögmenn
Ásgeir Helgi Jóhannsson héraðsdómslögmaður hefur bæst í eigendahóp Atlas lögmanna.

Í tilkynningu frá stofunni kemur fram að Ásgeir Helgi hafi lokið embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands í október 2005 og öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 2007.

„Ásgeir hefur undanfarin 7 ár starfað sem lögmaður og deildarstjóri á lögfræðisviði Landsbankans hf., auk þessa að sitja í stjórn Auðkenni ehf, áður starfaði hann sem lögmaður á Akureyri m.a. hjá Regula lögmannsstofu og LEX lögmannsstofu. 

Ásgeir Helgi hefur undanfarin ár unnið að verkefnum tengdum rafrænum viðskiptum og upplýsingatæknirétti, samninga- og kröfurétti, fjármála- og félagarétti. Auk þess er hann virkur meðlimur í Karlakórnum Esju,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×