Innlent

Tuttugu einkaherþotur undirbúa lendingu á Miðnesheiði

Íslensk stjórnvöld hafa dregið að taka pólitíska ákvörðun um að skrá hér á landi um tuttugu flugvélar hollensk/bandaríska fyrirtækisins E.C.A. Programs, segir Melville ten Cate, forstjóri hollenska fyrirtækisins E.C.A. Programs.

Í flugflota þess eru meðal annars vopnlausar, rússneskar orrustuþotur af Sukhoi-gerð. Fyrirtækið vill koma upp viðhalds- og þjónustustöð fyrir einkarekinn en vopnlausan æfingaflugher sinn hér á landi. Áformuð fjárfesting nemur 1,2 milljörðum evra, eða um 200 milljörðum á næstu þremur árum.

Áætlanir um að hefja framkvæmdir í janúar, svo að starfsemin hér á landi gæti hafist í haust, náðu ekki fram að ganga. Nú er horft til þess að leyfi liggi fyrir í lok sumars, að sögn Melvilles ten Cate. Þá verði 80 Íslendingar ráðnir til starfa og starfsemin hefjist fyrir árslok. Um 200 störf til viðbótar þarf að manna á árinu 2011.

Melville ten Cate segist bjartsýnn á að leyfin verði veitt. Íslensk stjórnvöld virðist áhugasöm um E.C.A.-verkefnið en taki eftirlits- og stjórnsýsluhlutverk sitt alvarlega. Hann tekur ekki undir að pólitíkin tefji framgang málsins en segir að taka þurfi pólitíska ákvörðun um að hefja skráningarferlið. Pólitískar ákvarðanir séu alls staðar tímafrekar og tafsamar.

„Við erum einkahernaðarfyrirtæki," segir ten Cate spurður um starfsemi fyrirtækisins. E.C.A. hefur rekið flutningaþjónustu fyrir heri víða um heim, meðal annars í Afganistan, Darfur og einnig á hamfarasvæðum eins og Haítí. Með fjárfestingunni á Íslandi er ætlunin að víkka starfsemina út.

Auk Sukhoi-þotnanna ræður E.C.A. meðal annars yfir ómönnuðum smáflugvélum, loftskeytahermum, ratsjám og færanlegum stjórnstöðvum.

Þjónusta þessa einkarekna vopnlausa flughers verður leigð herjum NATO-ríkja og bandamanna þeirra til að þjóna sem óvinaher við heræfingar.

Ten Cate segir að fyrirtækið taki að sér að finna veikleika í vörnum og bæti þannig þá þjálfun sem flugmenn orrustuþotna fá á heræfingum.

Fáist leyfin verður viðhalds- og þjónustustöð liðsaflans á Keflavíkurflugvelli þar sem flestir starfsmenn verða sérþjálfaðir íslenskir flugvirkjar og tölvunarfræðingar.

peturg@frettabladid.is









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×