Vilja hjólavefsjá í Reykjavík 12. ágúst 2010 15:11 Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á sæti í umhverfis- og samgönguráði. Mynd/Anton Brink
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgönguráði Reykjavíkur lögðu í dag til að gerð verði hjólavefsjá fyrir Reykjavík. Tillagan gerir ráð fyrir að vefsjáin verði gagnvirk vegvísun sem sýni borgarbúum á einfaldan hátt hvernig hjólafólk kemst frá A til B á sem fljótlegastan og öruggastan hátt, að því er fram kemur í tilkynningu frá Gísla Marteini Baldurssyni borgarfulltrúa. Hann segir að í hverjum mánuði aukist fjöldi þeirra sem hjóla í borginni og að hjólavefsjá myndi gera hjólreiðar að öruggari og aðgengilegri kosti fyrir hjólreiðafólk. Gísli segir að í vefsjánni gætu borgarbúar geti slegið inn upphafsstað og leiðarenda, og vefurinn komi til með að sýna um leið fljótlegustu leiðina, öruggustu leiðina, vegalengd og ferðatíma. Notendur gætu sent leiðina í GPS-tæki eða farsíma. „Í hverjum mánuði eykst fjöldi þeirra sem hjóla í borginni, og vefsjáin er ekki síst hugsuð fyrir þá sem eru að skipta yfir í þennan ódýra og skemmtilega samgöngumáta. Með hjólavefsjánni geta þeir fundið út hver öruggasta leiðin er á milli heimilis og vinnu, og ég er ekki í vafa um að mörgum kemur á óvart hversu þægilegt og fljótlegt er að komast á milli staða á hjólinu," segir Gísli. Gísli bendir á erlendir fyrirmyndir eins og í Seattle í Bandaríkjunum þar sem forrit sýni ekki aðeins leiðina, heldur einnig hversu flöt eða hæðótt hún er. Einföld útgáfa af svona kerfi er þegar í notkun á höfuðborgarsvæðinu fyrir strætó á www.straeto.is, að sögn Gísla. Gísli segir að meirihluti Samfylkingarinnar og Besta flokksins í umhverfis- og samgönguráði hafi frestað tillögunni.
Mest lesið Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Erlent Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Innlent Vopnað rán í Reykjavík Innlent Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Erlent Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Erlent Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Innlent Þingmenn á síðustu metrunum Innlent Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Erlent Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent Fleiri fréttir Engin þörf á aukaþingi í ágúst og veitingamenn ósáttir með vinnubrögð lögreglu Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Rændur á víðavangi vegna fíkniefnaskuldar Hefja borun rannsóknarholu á Landeyjasandi í vikunni Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar Þingmenn á síðustu metrunum Vopnað rán í Reykjavík Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Óskiljanlegt að ráðuneytið skoði bara stöðu námsgagna í stærðfræði Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Árekstur á Kársnesi Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Vill samfélagssáttmála vegna tómstundaiðkunar barna Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Sjá meira
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent