Erlent

Háhyrningurinn snúi heim til Íslands

Dawn Brancheau hafði áratuga reynslu af að vinna með háhyrningum á borð við Tilikum. Myndin er tekin skömmu áður en Tilikum dró hana niður á botn laugarinnar. MYND/AP
Dawn Brancheau hafði áratuga reynslu af að vinna með háhyrningum á borð við Tilikum. Myndin er tekin skömmu áður en Tilikum dró hana niður á botn laugarinnar. MYND/AP
Háhyrningurinn Tilikum sem drap þjálfarann sinn, Dawn Brancheau, á sýningu í SeaWorld í Orlando í síðustu viku á að fá að snúa í sitt náttúrulega umhverfi og á heimaslóðir við Íslandsstrendur. Þetta er skoðun pistlahöfundar bandaríska dagblaðsins Olympian.

Þjálfarinn lést eftir að Tilikum hafði gripið hana í kjaftinn og dregið hana niður á botn laugarinnar. Talsmenn SeaWorld segja ómögulegt að sleppa honum á ný út í náttúruna og ekki komi til greina að farga dýrinu. Í skoðanakönnun sem fréttastöðin CBS lét gera skömmu eftir atvikið kom í ljós að 77% vildu láta drepa háhyrninginn.

Því er pistlahöfundur Olympian ósammála. Hann segir að það sé uppskrift að stórslysi þegar stórt og greint sjávarspendýr sé tekið úr sínu náttúrulega umhverfi, flutt þúsundir kílómetra og komið fyrir í litlum tanki og haldið þar í einangrun í tæp 30 ár.

„Það á ekki að refsa eða drepa háhyrninginn vegna þess að hann er árásargjarn. Ef ekki væri fyrir græðgi manna hefði þessi harmleikur aldrei átt sér stað," segir pistlahöfundurinn. Tilikum hafi tekið út sína refsingu þau 27 ár sem hann hafi verið til sýnis og því eðlilegt að sleppa honum við strendur Íslands.

Fram kom í Fréttablaðinu fyrir helgi að Tilikum var fangaður af skipsverjum Guðrúnar HF í október 1983 ásamt tveimur öðrum háhyrningum í Berufirði og var um tíma til sýnis í Sædýrasafninu í Hafnarfirði. Hann var síðan seldur til Bandaríkjanna en íslenskir háhyrningar voru feikilega vinsælir á fyrri hluta áttunda áratugarins eftir að slíkar veiðar voru bannaðar í Kyrrahafinu 1972.


Tengdar fréttir

Tilikum verður áfram í SeaWorld

Háhyrningurinn Tilikum sem varð þjálfara sínum að bana í sædýrasafninu SeaWorld í Flórída í fyrradag fær að vera áfram í garðinum að sögn stjórnenda.

Tilikum fékk ekki að koma til Íslands

Háhyrningnum Tilikum var neitað um að koma til Íslands árið 1992 þegar erlendir dýraverndunarsinnar óskuðu eftir því að fá að flytja hann hingað. Tilikum hefur verið til umfjöllunar í heimspressunni undanfarna daga eftir að hann drap þjálfarann sinn, Dawn Brancheau, á sýningu í SeaWorld í Orlando í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×