Fréttablaðið, 05. feb. 2010 06:00

Álitsgjafinn

mynd

Jón Kaldal skrifar:

Seðlabankastjóri Hollands, Nout Wellink, sagði í gær að íslensk stjórnvöld hefðu logið um ástand íslenska bankakerfisins skömmu fyrir fall þess. Vitnisburður Wellinks, sem féll frammi fyrir hollenskri rannsóknarnefnd, er athyglisvert innlegg í þá vinnu sem er í gangi hér á landi og miðar að því að varpa ljósi á aðdraganda falls bankanna.
Ályktanir hollenska seðlabankastjórans byggjast líklega á því að örfáum vikum eftir að Hollendingum var sagt að allt væri í himnalagi með íslensku bankana, hrundu þeir til grunna. Væntanlega leggur Wellink ekki trúnað á að nokkur stjórnvöld hafi getað verið svo illa að sér um eigið bankakerfi að þau hafi ekki áttað sig á að það var að hruni komið. Svör Íslendinga um góða heilsu bankanna hafi þar með ekki verið gefin af bestu samvisku.
Í vitnisburði sínum vísaði Wellink, orðum sínum til staðfestingar, til samtals sem hann átti við kollega sinn í Seðlabanka Íslands í september 2008. Sá hafi sagt að hann hefði varað íslensk stjórnvöld við bágri stöðu bankanna hálfu ári fyrr, sem er um það bil í mars sama ár.
Þarna hlýtur að vera kominn Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður bankastjórnar Seðlabankans. Davíð hefur einmitt haldið því sjálfur fram að hann hafi margsinnis varað við því að viðskiptabankarnir væru á leið í þrot og með þeim íslenskt efnahagslíf. Því miður fyrir seðlabankastjórann fyrrverandi eru þó nákvæmlega engar skjalfestar heimildir til um þessar viðvaranir. Eina heimildin eru orð Davíðs sjálfs eftir að bankarnir voru komnir á höfuðið og allt var farið til fjandans.
Á hinn bóginn eru til fjölmörg opinber dæmi um fullyrðingar seðlabankastjórans fyrrverandi þess efnis að undirstöður íslensks fjármálalífs væru traustar. Eitt er til dæmis lokaorðin í áliti Seðlabanka Íslands úr ritinu Fjármálastöðugleiki, sem kom út 9. maí 2008 og Davíð Oddsson skrifaði undir sem formaður bankastjórnar:
„Á heildina litið er niðurstaða Seðlabankans enn sú að fjármálakerfið sé í meginatriðum traust. Íslenska bankakerfið uppfyllir kröfur sem gerðar eru til þess og stenst álagspróf sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hafa gert.“
Fimm mánuðum eftir að þetta álit birtist voru allir helstu bankar landsins fallnir.
Annað dæmi er frá mars árið 2008. Þá sagði seðlabankastjórinn fyrrverandi í viðtali við sjónvarpsstöðina Channel 4 að engar líkur væru á því að íslensku bankarnir færu í þrot og þó svo ólíklega færi gæti íslenska ríkið auðveldlega „gleypt“ skuldbindingar þeirra við erlenda innstæðueigendur. Tilefni spurningar breska fréttamannsins voru áhyggjur af háum upphæðum sem landar hans áttu á Icesave-reikningum Landsbankans.
Þegar öllu er á botninn hvolft skiptir hins vegar engu hver sagði hvað hvenær. Það eina sem skiptir máli er hver gerði hvað hvenær. Það er ekki hlutverk Seðlabanka Íslands að vera álitsgjafi á kantinum. Seðlabankinn er í lykilhlutverki við að tryggja fjármálastöðugleika í landinu og beita til þess þeim stjórntækjum sem hann hefur yfir að ráða. Við það verkefni réðu ekki fyrrverandi bankastjórar Seðlabankans. Þeir áttu að gæta hagsmuna almennings en gerðu það ekki.



Fleiri fréttir

Fastir pennar 18. mar. 2010 06:00

Lýðræðissjóðir?

Þótt lífeyrissjóðir landsmanna hafi orðið fyrir miklu áfalli í hruninu og tapað stórlega á...  

Meira

Fastir pennar 18. mar. 2010 06:00

Skjögrandi á háum hælum

Ég lýsti því á þessum stað fyrir tæpu ári, þá var liðið hálft ári frá hruni, að Íslendinga...  

Meira

Fastir pennar 16. mar. 2010 06:00

Leggðu á djúpið

Í vikunni er þess minnst að Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur starfað í sex áratugi. Vonir ...  

Meira

Fastir pennar 15. mar. 2010 06:00

Opnið augun

Á Íslandi þrífst skipulögð glæpastarfsemi. Það er staðreynd, sem ekki þarf lengur að deila...  

Meira

Fastir pennar 13. mar. 2010 11:13

Grikklandsfárið

Grikkland er á hausnum. Það eru ekki nýjar fréttir. Grikkland hefur oft áður verið á hausn...  

Meira

Fastir pennar 13. mar. 2010 06:00

Hver stingur hausnum út?

Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um icesave velta menn því helst fyrir sér hvenær Ögmundur Jó...  

Meira

Fastir pennar 12. mar. 2010 06:00

Góðum verkum haldið á lofti

Oft er því haldið fram að í hraða nútímasamfélagsins gefist lítill tími til að huga að náu...  

Meira

Fastir pennar 12. mar. 2010 06:00

Misjöfnun

Þegar nýr erfingi dönsku krúnunnar var að í þann mund að koma í heiminn, fyrir nokkrum áru...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Óvissuferð

Átök verða styrkist krónan ekki um fjórðung til fimmtung. Þetta voru skilaboð Alþýðusamban...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Í minningu Valtýs

Tveir stjórnmálamenn áttu mestan þátt í að ryðja Íslandi braut inn í nútímann, og fór þó h...  

Meira

Fastir pennar 11. mar. 2010 06:00

Íslenska krónan: Er sveigjanleikinn of dýru verði keyptur?

Í þeirri miklu fjármálakreppu sem riðið hefur yfir heimsbyggðina síðustu misseri upplifði ...  

Meira

Fastir pennar 10. mar. 2010 06:00

Dæmt fyrir mansal í fyrsta sinn

Daginn sem konur tileinkuðu 8. mars baráttu sinni fyrir jafnrétti kynjanna í hundraðasta s...  

Meira

Fastir pennar 09. mar. 2010 06:00

Kosið um kvóta?

Ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í Fréttablaðinu í gær, um að næsta þjóðarat...  

Meira

Fastir pennar 09. mar. 2010 06:00

Þarfur og óþarfur iðnaður

Það er skiljanlegt að á krepputímum sé uppi rík krafa um sparnað og hagræðingu í rekstri r...  

Meira

Fastir pennar 08. mar. 2010 06:00

Þrír kostir

Úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave-lögin á laugardag koma ekki á óvart. Miðað við...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsælast

Afréttarinn mikli

Afréttarinn mikli

Haustið 2008 reið stærsta fjármálakreppa allra tíma yfir á Íslandi. Á sama tíma ...


Nýtt á Vísi

Nærmynd Matur

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni

-- catnafn="Fastir pennar"--