Vill ekki láta útrýma villtu fé 27. október 2009 05:00 Kindur Fyrir 30 árum var reynt að útrýma fénu á Tálkna með því að skjóta það úr þyrlu.fréttablaðið/stefán
Smölun á villtu fé sem hefst við í kringum fjallshrygginn Tálkna verður reynd í dag á vegum Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps. Landið er afar erfitt yfirferðar og hefur þurft að skjóta það fé sem ekki næst til. Deilt er um það hvort þetta er nauðsynlegt en samkvæmt dýraverndunarlögum er lausaganga sauðfjár ekki leyfileg yfir veturinn af mannúðarástæðum. Það fé sem tekst að smala verður fært til slátrunar. Ólafur Gunnbjarnarson, fyrrverandi fulltrúi í fjallskilanefnd þar vestra, segir að á Tálkna og svæðinu þar í kring séu að öllum líkindum um tuttugu kindur. Þær eru hluti af villtum fjárstofni sem hefur hafst þarna við frá því um 1950 en nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til að útrýma honum af fyrrgreindum ástæðum. „Síðast þegar þetta var gert var féð skotið og hræin voru skilin eftir á víðavangi.“ Alls voru 23 kindur skotnar árið 2004. „Rökin fyrir þessum árásum eru þau að ekkert megi vera til sem heitir villt sauðfé,“ segir Ólafur. „Ég er hins vegar á þeirri skoðun að það eigi að láta stofninn vera.“ Ragnar Jörundsson, bæjarstjóri Vesturbyggðar, segir að lögin séu skýr og sveitarfélögunum sé gert að koma fénu af svæðinu. Bæði hafi sýslumaður og héraðsdýralæknir krafist þess. Hann efast um að hægt sé að leyfa fénu að vera. Hann vilji ekki til þess hugsa að féð svelti í hel eða hrapi af klettum í vondum veðrum. - shá
Mest lesið Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent „Býsna margt orðið grænmerkt“ Innlent Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Innlent Konan er fundin Innlent Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um hóp pilta í grunsamlegum erindagjörðum Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sósíalistum bolað úr Bolholti Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Lokametrar, bútasaumur og Starbucks Veiðigjaldið aftur í nefnd og viðræður komnar á lokametra Lára snýr sér að kynningarstörfum fyrir HR Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Skellt upp úr í þingsal þegar ráðherra reyndi að mynda hjarta Rúv vildi Ísraelsmenn burt en þeir sluppu með skrekkinn í bili Sjá meira