Innlent

Sérstakur saksóknari afneitar kröfu Evu Joly skriflega

Valur Grettisson skrifar
Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari.
Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari.

„Þetta er ekki sagt í hans embætti. Ég er með það skriflegt frá honum," segir Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari sem segist hafa skriflegt plagg frá Ólafi Þór Haukssyni að krafan hennar Evu er ekki sett fram í nafni embættis sérstaks saksóknara og þar kemur fram að Ólafur er henni ekki sammála.

Hin norskættaða Eva Joly skoraði á Valtý að segja upp starfi sínu sem ríkissaksóknari þegar hún var í viðtali við RÚV fyrr í dag. Þar spurði hún einnig hvað hann ætti að gera í starfi sínu sem ríkissaksóknari þar sem mestur tíminn færi í að rannsaka efnahagshrunið.

„Þetta er alveg óskiljanlegt," segir Valtýr og telur málflutning Evu kominn út fyrir allan þjófabálk. Hann segir það óþarfi að gera lítið úr embætti ríkissaksóknara sem hefur ærin verkefni á sinni könnu. Hann segir starfslýsinguna nokkuð skýra og að hana megi finna á netinu hafi Eva áhuga á því.

Ástæðan fyrir því að Eva ræðst svo harkalega á Valtý er sú að sonur hans er annar forstjóra Exista sem áður áttu meirihluta í Kaupþingi sem nú er í ríkiseigu eftir harkalegt bankahrun.

Í kjölfarið lýsti Valtýr sig vanhæfan til þess að koma að rannsókn mála sem varða bankahrunið en það kom þó ekki í ljós fyrr en Eva var búinn að fara í fjölmiðla og krefjast afsagnar hans. Eva krafðist auk þess að þrír sérstakir saksóknarar yrðu skipaðir til þess að skoða hvern banka fyrir sig.

Dómsmálaráðherra er nú langt kominn með frumvarp um þrjá ríkissaksóknara en kröfu Evu um að koma Valtý úr embætti er ekki á færi ráðherrans þar sem embætti ríkissaksóknara er lögvarið.

Nú er komið í ljós að krafa Evu er ekki í samræmi við skriflegt plagg sérstaks saksóknara og því ljóst að málflutningur Evu ekki í samræmi við yfirmann hennar Ólaf Þór.

Aðspurður hvað Valtý finnist um kröfu Evu svarar hann: „Ég skil ekki hvert hún er að fara með þessari þráhyggju sinni eða í hvaða farveg þetta fer. Við erum að drukkna í verkefnum hérna."




Tengdar fréttir

Ólafur Þór Hauksson: Er hlutlaus varðandi afsögn ríkissaksóknara

„Hann beindi fyrirspurn til okkar um það hvort Eva talaði í nafni embættsins og það gerir hún ekki," segir sérstakur saksóknari efnahagshrunsins, Ólafur Þór Hauksson, spurður hvort það sé rétt að hann hafi látið Valtý Sigurðsson, ríkissaksóknara fá skriflegt plagg um að Eva Joly talaði ekki í krafti embættisins þegar hún krafðist afsagnar Valtýs.

Eva Joly: Hvað ætlar Valtýr þá að rannsaka?

Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara í málefnum tengdum bankahruninu, segir í viðtali við Fréttastofu RÚV að hún vilji að ríkissaksóknari segi starfi sínu lausu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×