Vísir, 20. feb. 2009 09:34

Óskar gagnrýndur af flokksbróður

mynd
Friðrik Jónsson.

Friðrik Jónsson, formaður Framsóknarflokksins á Akranesi og frambjóðandi um oddvitasæti flokksins í Norðvesturkjördæmi, gagnrýnir harðlega Óskar Bergsson, flokksbróður sinn og formann borgarráðs, fyrir að hafa sýnt dómgreindarskort vegna móttöku sem hann hélt fyrir framsóknarmenn í Ráðhúsinu og varðandi málefni Eyktar.

Óskar hefur sætt gagnrýni fyrir að hafa boðið rúmlega 30 flokksystkinum sínum í móttöku á kostnað borgarinnar í nóvember. Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, hefur farið fram á að upplýst verði hverjir þáðu boðið og hver kostnaður við móttökuna hafi verið. Hann hefur jafnframt spurt Óskar um tengls hans við verktakafyrirtækið Eykt og hvort hann hafi þegið beinar greiðslur frá félaginu eða öðrum fyrirtækjum í byggingariðnaði.

Í samtali við fréttastofu í gær sagðist Óskar ekki ætla að upplýsa hvaða einstaklingar eða fyrirtæki hafi styrkt sig í prófkjörsbaráttu Framsóknarflokksins 2006.

Dómgreindarskortur Óskars


Fréttir af móttökunni eru óheppilegar, að mati Friðriks. ,,Það má vel vera að hún hafi verið innan "réttar" hans embættis að fá hana kostaða af borginni, en það var dómgreindarskortur engu að síður, sérstaklega þar sem hér var víst bara um móttöku fyrir framsóknarmenn í sveitarstjórnum að ræða," segir Friðrik í pistli á heimasíðu sinni.

Ófullnægjandi svör um Eykt

Jafnframt segir Friðrik að svar Óskars við því hvort hann hafi fengið stuðning frá Eykt sé ekki fullnægjandi. Óskari sé í lófa lagið að lýsa því jafnframt yfir að þau fjárframlög sem hann hefi þegið í kosningasjóði hafi verið án skuldbindinga.

Skrif Friðriks Jónssonar er hægt að lesa hér.




Fleiri fréttir

Innlent 17. mar. 2010 04:00

Deila um viðræðugrundvöll

Enn hafa engir fundir verið haldnir á milli íslensku samninganefndarinnar um Icesave og Br...  

Meira

Innlent 17. mar. 2010 03:30

Útlit á göngum stöðvarinnar verði óbreytt

„Fyrstu athuganir á mögulegum breytingum á húsnæðinu og kostnaði benda til að þær eru inna...  

Meira

Innlent 17. mar. 2010 03:13

Breytti áætlun vegna snjóleysis

„Það lá alltaf fyrir að það myndi ráðast af snjólögum hversu langt ég kæmist,“ segir Einar...  

Meira

Innlent 17. mar. 2010 03:13

Spyr um bónuskerfi bankanna

Lilja Mósesdóttir, formaður viðskiptanefndar Alþingis, hyggst kalla fulltrúa bankanna og b...  

Meira

Innlent 17. mar. 2010 03:13

Ólík viðbrögð við vanskilum

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa mjög mismunandi hátt á varðandi það hvernig þau n...  

Meira

Innlent 17. mar. 2010 03:13

Stöðva enn nýsmíði Hrafns í Laugarnesi

Framkvæmdir við ný mannvirki á og við lóð Hrafns Gunnlaugssonar, kvikmyndaleikstjóra í Lau...  

Meira

Innlent 16. mar. 2010 23:12

Hart deilt um þriggja ára fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar

Fulltrúar minnihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur, utan Ólaf F. Magnússon, sátu hjá þegar ...  

Meira

Innlent 16. mar. 2010 19:54

Landsbankinn: Ekki búið að samþykkja neitt bónuskerfi

„Umræða um innleiðingu kaupaukakerfis í Landsbankanum er algerlega ótímabær. Ekkert slíkt ...  

Meira

Innlent 16. mar. 2010 20:30

Engar skattahækkanir áætlaðar í þriggja ára áætlun borgarinnar

Engar skattahækkanir eru áætlaðar í þriggja ára áætlun borgarstjórnar sem meirihluti Frams...  

Meira

Innlent 16. mar. 2010 18:50

Bjóða ferðamönnum upp á selaskoðun

Selaskoðun af sjó er það nýjasta í ferðaþjónustu. Tveir menn á Hvammstanga bregðast við ve...  

Meira Myndskeið

Innlent 16. mar. 2010 18:37

Fundað vegna Icesave á þriðjudaginn

Fulltrúar í utanríkismálanefnd Alþingis munu að öllum líkindum eiga fund um Icesave með ut...  

Meira Myndskeið

Innlent 16. mar. 2010 18:33

Bótasvikasveit sparar ríkinu á fjórða hundrað milljónir

Hópur sem vinnur að því að uppræta bótasvik sparaði Vinnumálastofnun útgjöld sem nema á fj...  

Meira Myndskeið

Innlent 16. mar. 2010 18:28

Vilja mansalsathvarf

Unnið er að því að koma á fót svo kölluðum mansalsathvörfum þar sem hægt að er vernda fórn...  

Meira Myndskeið

Innlent 16. mar. 2010 17:38

Tók tíu mínútur að segja þvert nei - flugumferðastjórar harðorðir

Flugumferðastjórar eru harðorðir í yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér. Þar segir að það ha...  

Meira Myndskeið

Innlent 16. mar. 2010 17:26

28 lögaðilar grunaðir um brot á gjaldeyrisviðskiptum

Alls hafa 28 málum lögaðila, sem grunaðir eru um brot á gjaldeyrislögum, verið vísað til F...  

Meira

Leit á Vísi

Fréttir

Vinsælast


Nýtt á Vísi

Eiga stjórnvöld að lækka skatta og álögur á bensín?


Kjörkassinn

Fréttaskýringar Nærmynd

Fréttalínan - Sendu frétt á Stöð 2 og Vísi


Aðgengisvirkni

-- catnafn="Innlent"--