Innlent

Leggja fram frumvarp um stjórnlagaþing

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Framsóknarflokksins.

Framsóknarflokkurinn hyggst leggja fram frumvarp um stjórnlagaþing næst þegar þing kemur saman. Þingið hefði það hlutverk að semja nýja stjórnarskrá.

Stuðningur við frumvarpið er eitt þriggja skilyrða sem Framsóknarflokkurinn setur fyrir stuðningi sínum við minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri-grænna.

63 fulltrúar

Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir því að 63 fulltrúar verði kosnir í almennum kosningum til setu á þinginu. Þrjúhundruð undirskriftir þyrfti til að geta boðið sig fram til setu á stjórnlagaþinginu, en þingmenn, ráðherrar, dómarar Hæstaréttar og forseti geta samkvæmt frumvarpinu ekki boðið sig fram.

Einfaldan meirihluta þeirra fulltrúa þyrfti til að samþykkja breytingar á stjórnarskránni. Framsóknarmenn sjá fyrir sér að jafnvel yrði hægt að kjósa á þingið samhliða alþingiskosningum í vor. Þingið myndi starfa í allt að sex mánuði, en möguleiki væri að framlengja störf þess.

Úr höndum þingmanna

Birkir Jón Jónssonn varaformaður Framsóknarflokksinsn sagði á blaðamannafundi þar sem frumvarpið var kynnt að ekki væri eðlilegt að þingmenn sjálfir fjölluðu um breytingar á borð við kosningafyrirkomulag, kjördæmaskipan og fjölda þingmanna.

Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður flokksins, sagði að kominn væri tími á að taka málið úr höndum þingmanna.

Bein kosning handhafa framkvæmdavalds

Forystumenn flokksins, sögðu mikilvægt, að greina betur á milli þrískiptingar ríkisvaldsins.  Eygló Harðardóttir sagði að ein af hugmyndum sem rætt hafi verið um bein kosning handhafa framkvæmdavalds sem myndi þýða afnám þingræðis. Forseti eða forsætisráðherra yrði kjörinn í sérstakri kosningu og hann myndi skipa ráðherra í ríkisstjórn sína að bandarískri fyrirmynd.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×