Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi, fagnar afsögn Björgvins G. Sigurðssonar sem viðskiptaráðherra og segist hafa í langan tíma talað fyrir því að hann léti af embætti. ,,En mikið ósköp er þetta seint í rassinn gripið," segir Oddný á vefsíðu sinni.
Samfylkingarmaðurinn Benedikt Sigurðsson og fyrrum stjórnarformaður KEA er sömu skoðunar en hann sagði í Silfri Egils að Björgvin hefði átt að taka pokann sinn fyrr. Benedikt kallaði eftir því í október að Björgvin segði af sér.
,,Nú beinast spjótin að Seðlabankanum, það verður aldrei hægt að halda áfram stjórnarsamstarfinán þess að nauðsynlegar breytingar verði gerðar þar," segir Oddný.
Oddný telur líklegt að Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, verði skipaður næsti viðskiptaráðherra.
Pistil Oddnýjar er hægt að lesa
hér.