Innlent

Ingibjörg gagnrýnir Ísraela vegna loftárása á Gaza

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisràðherra, telur hernaðaraðgerðir Ísraels à Gazaströndinni í dag óverjandi. Þó að Ísrael standi frammi fyrir öryggisógn og að àkvörðun Hamas um ad segja sig frá vopnahléi sé röng verða viðbrögð að vera í samræmi við hættu eins og alþjóðleg mannúðarlög krefjast, segir Ingibjörg í yfirlýsingu vegna atburða dagsins.

Ísraelsher hóf í morgun röð loftárása á Gaza-ströndina sem svar Ísraelsstjórnar við sprengjuárásum Hamasliða á ísraelskt landsvæði eftir að vopnahlé þessara aðila rann út í sandinn 19. desember. 195 Palestínumenn eru látnir og yfir 200 slasaðir.

,,Alþjóðasamfélagið getur ekki lengur látið óàtalið að mannréttindi og alþjóðlegar skuldbindingar séu fótum troðnar á Gasasvæðinu. Ísland styður að málið verði tekið til umfjöllunar á vettvangi öryggisráðsins og að deiluaðilar verði kallaðir til raunverulegrar ábyrgðar og látnir standa við fyrirheit sín," segir Ingibjörg.




Tengdar fréttir

120 látnir eftir loftárásir Ísraela

Rúmlega 120 Palestínumenn eru látnir og yfir 200 særðir eftir að Ísraelar hófu röð loftárása á Gaza-ströndina í morgun. Tugum flugskeyta hefur verið skotið á skotmörk á svæðinu, þar á meðal lögreglustöð. Gaza-svæðið hefur verið á yfirráðasvæði Hamas-samtakanna frá í júní 2007.

Telur að umheimurinn hafi skilning á aðgerðum Ísraela

Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísraels, telur að Telur að umheimurinn hafi skilning á aðgerðum Ísraela á Gazasvæðinu. Tala fallinna í loftárásum Ísraelshers á Gaza í dag fer stighækkandi og nú er talið að um tvö hundruð manns hafi fallið og á fjórða hundrað manns hafi særst.

Egyptar fordæma loftárásir Ísraela - 155 látnir

Stjórnvöld í Kaíró fordæma loftárásir Ísraela í harðorði yfirlýsingu sem ríkisfréttastöðin Mena birti fyrir stundu. Egyptar telja að Ísraelar beri fulla ábyrgð á dauða yfir 155 Palestínumanna á Gaza-svæðinu í morgun.

Fjöldamorð framin til að uppræta Hamas - 195 látnir

Ísraelar fremja fjöldamorð á Palastínumönnum á Gaza-svæðinu til að ganga á milli bols og höfuðs á Hamas-samtökunum, að mati Sveins Rúnars Haukssonar formanns félagsins Ísland-Palestína. Hann segir að árásin í morgun hafi verið yfirvofandi um nokkurt skeið. Það styttist í þingkosningar í Ísrael og frambjóðendur keppast við að lýsa því yfir að þeir vilji eyða Hamas.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×