Innlent

Guðni segir af sér þingmennsku og formennsku í Framsókn

MYND/GVA

Guðni Ágústsson hefur sagt af sér þingmennsku. Þetta tilkynnti Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, við upphaf þingfundar og vísaði til bréfs sem Guðni sendi þinginu. Þá hefur Guðni einnig ákveðið að hætta sem formaður Framsóknarflokksins og segir að flokkurinn muni ekki rísa á ný fyrr en breytingar verði á forystu hans.

Þar kom fram þakklæti til þingmanna og starfsfólks fyrir gott samstarf og um leið óskaði hann þjóðinni gæfu í von um að henni tækist að komast í gegnum erfiðleikana sem nú ganga yfir.

Í bréfi til þingmanna flokksins segir Guðni að ákvörðunin sé tekin í samráði við fjölskyldu sína.

„Ég tók við formennsku í Framsóknarflokknum eftir síðustu alþingiskosningar en þær voru okkur öllum mótdrægar. Við misstum fimm þingmenn af tólf og formaður flokksins Jón Sigurðsson féll í Reykjavík. Ég gerði mér grein fyrir því að það væri langtímaverkefni að byggja Framsóknarflokkinn upp á nýjan leik.

Ég var reiðubúinn til að leiða það starf með öflugum og samhentum hópi fólks sem setti flokk sinn og pólitísk gildi hans í öndvegi. Því miður hefur vonin um nauðsynlegan starfsfrið og einingu breyst í andhverfu sína. Mér er það ljóst að sú sátt innan Framsóknarflokksins sem nauðsynleg er fyrir endurreisn hans mun ekki skapast án breytinga í forystu flokksins. Sú sátt þolir enga bið. Með afsögn minni legg ég mitt af mörkum til að hraða því breytingaferli sem óhjákvæmilegt er til þess að Framsóknarflokkurinn nái að safna kröftum sínum á nýjan leik," segir Guðni í bréfinu.

Þakkar hann fólki um allt land fyrir tryggð við flokkinn og sig. „Ég óska nýjum forystumönnum flokksins og Framsóknarflokknum allra heilla í framtíðinni. Það var eining og drengskapur sem einkenndi þann Framsóknarflokk sem ég gekk til liðs við ungur að árum. Ásamt skýrum hugsjónum og pólitískri staðfestu eru það einmitt eining og drengskapur sem fæða af sér stórar hreyfingar," segir Guðni í bréfinu.

Guðni hefur setið á Alþingi frá árinu 1987, eða í rúm 20 ár. Hann var landbúnaðarráðherra á árunum 1999-2007 og varaformaður Framsóknarflokksins á árunum 2001-2007. Hann tók svo við formennsku í flokkknum í fyrra þegar Jón Sigurðsson sagði af sér í kjölfar þingkosninga.

Þingmenn voru gáttaðir á fréttunum og virtust þær koma öllum á óvart. Færðu þeir Guðna þakkir fyrir samstarfið.

Guðni er annar þingmaður Framsóknarflokksins sem segir af sér þingmennsku á einnig viku. Í síðustu viku sagði Bjarni Harðarson af sér þingmennsku eftir að bréf, sem hann hugðist senda í nafnleysi og hafði að geyma árásir á Valgerði Sverrisdóttur til fjölmiðla, rataði í fjölmiðla í hans nafni.

Eygló Harðardóttir varaþingmaður tekur sæti Guðna á Alþingi.
















Tengdar fréttir

Segir hóp á vegum Valgerðar hafa gert aðför að Guðna

Bjarni Harðarson fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins segir afsögn formannsins vera afar slæm tíðindi fyrir flokkinn. Guðni Ágústsson sagði af sér þingmennsku í dag og lét einnig af störfum sem formaður flokksins. Bjarni vissi af ákvörðun Guðna fyrir um hálfum sólarhring og segist styðja hann heilshugar rétt eins og Guðni gerði í síðustu viku, þegar Bjarni sagði af sér þingmennsku.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×