Athugasemdir Jóns fóru óvart á netið 9. júlí 2008 14:39
Athugasemdir sem Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins, tók saman á fundi allsherjarnefndar í gær fóru fyrir mistök á netið. Allsherjarnefnd fundaði í gær um mál Paul Ramses. Vísir birti athugasemdirnar skömmu eftir að þær voru birtar á heimasíðu Frjálslynda flokksins. Þar koma fram ýmsar upplýsingar um persónulega hagi Paul Ramses áður en farið var með hann til Ítalíu. Einhverjar þeirra virðast vera úr sjúkraskrám konu hans. "Ég er afar óhress með að þetta skildi hafa farið á netið," segir Jón í samtali við Vísi. Hann segist hafa tekið saman punkta á fundinum til þess að senda á félaga sína í þingflokki frjálslyndra. Af einhverjum ástæðum hafi þeir svo endað á heimsíðu flokksins. "Ég veit ekki hvernig þetta gerðist. En þetta eru mistök." Ágúst Ólafur Ágústsson, sem fer með formennsku í nefndinni í fjarveru Birgis Ármanssonar, segir að efni funda allsherjarnefndar séu ekki trúnaðarmál. Það sé undir dómgreind hvers og eins nefndarmanns komið að ákveða hvað eigi erindi út fyrir fundi. Hér fyrir neðan eru punktarnir sem Jón tók saman á fundinum og fóru óvart á netið: Á fundi Allsherjarnefndar Alþingis þ.8.7.2008 sem haldinn var skv beiðni VG vegna máls Paul Ramses kom m.a. fram:(PR skammstöfun Paul Ramses) Paul Ramses var ekki brottvísað, hann var framseldur til réttra yfirvalda þ.e. Ítalíu skv. ákvæðum Schengen samningsins með vísan til Dyflinar samkomulagsins. Miðað við þær reglur virðist ljóst að það var aldrei verkefni Útlendingastofnunar að fjalla um mál PR. Eiginkona PR hefur ekki sótt um hæli hér á landi. Þau kusu að afgreiða málið ekki sameiginlega. Konan kom í des. 07 og skorað var á hana að fara í jan. s.l. PR kom til landsins þ.12.1.05-30.8.05 sem styrkþegi til náms. Dvöl framlengd til 1.1.2006 Umsókn um atvinnuleyfi 15.11.05 Synjað af Vinnumálastofnun 3.4.2006 PR fær síðan atvinnuleyfi 8.6.06 til 31.10.06 Sótt um áframhaldandi atvinnuleyfi 23.8.06 Synjað. Tilynnt að sé farinn í nóvember 06. Júní 2007 PR og eiginkona sækja um dvalarleyfi. Ekki heimilað. Jan 2008 Ákvörðun um framsal, Rauði krossinn biður um að brottför verði frestað fram yfir barnsburð konunnar. PR er af Luo ættbálknum í Kenýa. Ekkert liggur fyrir um kosningabaráttu hans, pólitísk afskipti, gilt hjúskaparvottorð eða annað. Þau mál voru aldrei könnuð af því að um hælismálið var aldrei fjallað hér. Þegar kona PR kom í mæðraskoðun segist hún hafa dvalarleyfi í Svíþjóð og það er vitað af PR í landinu þegar hann borgar fyrir skoðunina. Þá segir PR að hann hafi komið í gegn um Ítalíu og ætli aftur til Kenýa. Tengsl PR við landið: Hefur unnið á veitingastaðnum Vegamót og fyrir ABC samtökin. Hefur kynnt Kenýa í Alþjóðahúsi. Hann á ekki ættingja hér á landi. Af hálfu Alþjóðahúss var tekið fram að ekki væru gerðar athugasemdir við vinnubrögð Útlendingastofnunar. Fulltrúar Alþjóðahúss tóku fram að það sem spurning gæti verið um hér væri sanngirnissjónarmið. Rauði krossinn gerir heldur ekki athugasemdir við vinnubrögð Alþjóðahúss. Talsmaður Amnesty International telur að það hefði átt að skoða einstaklingsbundnar aðstæður PR og telur tengsl við landið réttlæta frávík.
Mest lesið Strandveiðisjómaður lést Innlent Allkröpp lægð á leiðinni til landsins Veður Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Innlent Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Innlent Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Innlent Unglingsstúlka lést þegar hestur dró hana eftir jörðinni Erlent „Þetta er ekkert líf“ Innlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Snurða hljóp á þráðinn í nótt Innlent Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Innlent Fleiri fréttir Sanna og Gunnar Smári höfðu betur á æsingarfundi Annað útkall vegna strandveiðibáts úti fyrir Patreksfirði „Þetta er ekkert líf“ Umræða um veiðigjöldin orðin sú þriðja lengsta Óprúttinn aðili rispaði tíu bíla á Seltjarnarnesi Fylkingarnar safna liði og ásakanir ganga á víxl: Stefnir í átök í Bolholti Líf í biðstöðu og hitafundur sósíalista Strandveiðisjómaður lést Deila um Suðurnesjalínu 2 fer beint í Hæstarétt Áslaug Arna farin í frí en enginn tekinn við Sviptur prófinu eftir að hafa ekið á 185 Ældi í rútunni og réðst svo á bílstjórann Sá sem réðst á Ingunni áfrýjar til hæstaréttar Bein útsending: Rektorsskipti í Háskóla Íslands Snurða hljóp á þráðinn í nótt Samstöðinni verði mögulega lokað í kvöld: Vilja fá lögbann á boðaðan aðalfund Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði Reynt að ná saman um þinglok og hart deilt um Vorstjörnuna Máttu ekki eyða gögnum fyrr en málum væri lokið á öllum dómstigum Bjórpása í Víkinni og lögreglan í heimsókn í Garðabæ Skoða ekki hvort maður hafi mátt binda barn niður og kitla Biður Höllu afsökunar á fréttum af meintum lífvörðum Svörin líklega að finna á Íslandi: Vonlítill um að Jón Þröstur sé á lífi Skjálfti upp á þrjá í Kötlu Fundar með þingflokksformönnum Fötlun þýði ekki að börn njóti þess minna að róla og leika sér Borgin fékk frest til að svara Umboðsmanni um fundargerðarbreytingar Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Sjá meira