Plastsvanur fékk sér kríu 3. júní 2008 11:16 Forsíða Morgunblaðsins í dag.
Morgunblaðið gerði þá hvimleiðu villu í blaðinu í dag að birta á forsíðu sinni mynd af plastsvani sem blaðið hélt að væri lifandi álft en á plastkollinum hvíldi kría. Þótti stórmerkilegt að svo skemmtilegt athæfi í náttúrunni næðist á filmu en myndina tók Guðbjörn Magnússon við tjörn í Ólafsvík. Innan í blaðinu mátti svo finna fleiri myndir frá „náttúruundrinu" og frekari umfjöllun. Sagði þar meðal annars: „Guðbjörn segist telja að álftin sé geldfugl og því „opnari" fyrir uppákomum." Fall er vonandi fararheill því um var að ræða fyrstu forsíðu Ólafs Þ. Stephensen sem formlega tók við ritstjórnarstólnum af Styrmi Gunnarssyni í gær með pompi og prakt. Ástæðan fyrir veru plastsvananna í tjörninni er sú að einn íbúi Ólafsvíkur, Ríkarð Magnússon, kom plastsvönunum fyrir í tjörninni í fyrrasumar ásamt nokkrum stokköndum. Ríkarð segir fuglana hafa vakið skemmtileg viðbrögð og hann sjái oft ferðamenn stoppa við tjörnina til að taka myndir. Ríkarð var brugðið í morgun við að sjá plastsvaninn á forsíðu Morgunblaðsins en hafði þó gaman af misskilningnum. Vísir hafði einnig samband við bæjarskrifstofu Snæfellsbæjar og þar hafði einhver á orði að „svona færi fyrir þeim sem ekki hefðu komið upp fyrir Elliðaárnar."
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira