Lífið

Vinslit í beinni útsendingu

Kolfinna og Ásdís meðan allt lék í lyndi.
Kolfinna og Ásdís meðan allt lék í lyndi.

Mikil átök hafa verið áberandi hjá þáttastjórnendum kvennaþáttarins Mér finnst sem sýndur var á ÍNN þeim Ásdísi Olsen og Kolfinnu Baldvins. Segja má að soðið hafi uppúr í síðustu viku þegar Gunnlaugur stjörnuspekingur var gestur þáttarins þar sem Ásdís hótaði að ljúka samstarfinu á staðnum. Tókust þær stallsystur á um orðið og gátu engan veginn komið sér saman um umræðuefni.

"Já ég get staðfest að það er búið að vera svolítið fjör hjá okkur. Auðvitað langar okkur að halda áfram með þáttinn því hann hefur slegið í gegn og greinilega mikil þörf á þessari umræðu. Við höfum fengið mikil og góð viðbrögð frá áhorfendum og margir vilja taka þátt í umræðunni. Ég og Kolfinna erum eins og svart og hvítt og það er ekkert skrýtið að í svona samstarfi verði átök. Eins og svo oft áður vildi Kolfinna dvelja við pólitíkina á meðan ég vildi fá að heyra hvað gesturinn hafði að segja, skoða mannlega þáttinn og vera á persónulegum nótum. Framhaldið hefur ekki enn verið ákveðið," segir Ásdís Olsen en þátturinn er í pásu eins og er.

Hægt er að horfa á rifrildið hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×