Óraunhæf hugmynd 15. febrúar 2007 12:30
Það er óraunhæf hugmynd að leggja alla áherslu á mannfjölgun á Austurlandi í tengslum við framkvæmdir álvers Alcoa í Reyðafirði. Þetta segir lektor við Háskólann á Akureyri vegna nýrrar skýrslu Hagstofunnar sem sýnir að fólki fækkar á Austurlandi. Eins og Fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá í gær sýnir skýrsla Hagstofunnar um þróun búferlaflutninga síðasta áratuginn að fleiri fluttu sig um set innan Austurlands og fjöldi brottfluttra er enn hærri en aðfluttra. Kjartan Ólafsson, lektor við Háskólann á Akureyri hefur stýrt rannsóknum á félagslegum áhrifum stóriðjuframkvæmda á Austurlandi. Hann segir þessar niðurstöður ekki koma honum á óvart. Það sem ætti að knýja íbúafjölgun á Austurlandi, sem er álverið á Reyðafirði, er ekki tilbúið né starfhæft. Framkvæmdartíminn sé ekki ástæða til að ætlast til íbúafjölgunnar. Í fyrstu atrennu hljóti þeir sem búa í næsta nágrenni við Reyðafjörð að sækja fyrst um vinnu þar og einnig sé líka um tilfærslu á milli starfa að ræða það er að segja fólk færi sig úr landbúnaði og sjávarvinnslu í álframleiðslu. Kjartan segir að sveitastjórnarmenn hafa lagt of mikla áherslu á fjölgun í fjórðunginum í stað þess að leggja áherslu á að bæta samfélagið. Aðspurður hvort hægt sé að sjá fyrir hvort þessi þróunin verði viðvarandi, segir Kjartan það byggja á á efnahagslegu ástandi í landinu öllu hvort fólk flytji ti Austurlands að sækja í vinnu eða hvort það verði vinnuafl sem komi erlendis frá. Á meðan atvinnustigið er eins og nú er ekki hvati fyrir fólk annars staðar af landinu til að flytja til Austurlands.
Mest lesið Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Innlent Vöknuðu með rottu upp í rúmi Innlent Töldu mann ætla að nota riffil með hljóðdeyfi í Gufunesmálinu Innlent Húsleit á heimili þekkts brotamanns Innlent „Það er hetja á Múlaborg“ Innlent Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Innlent „Ketamín-drottningin“ játar að hafa selt Perry ketamín Erlent Ágóði af „Waka Waka“ sagður hafa endað í vasa Shakiru Erlent Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Innlent Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Húsleit á heimili þekkts brotamanns Hraðari aflögun í Krýsuvík en áður Þess sem stýrir rannsókn að ákveða lengd símabanns fanga Fordæmisgefandi fyrir Ísland hvernig haldið verði á málum Úkraínu Sóttu skipverja á rússnesku skipi langt út á sjó og svo beint í Hrafntinnusker Kanna starfshætti, verklag og aðstæður Vöknuðu með rottu upp í rúmi Töldu mann ætla að nota riffil með hljóðdeyfi í Gufunesmálinu Notuðu gröfu til að brjótast inn í hraðbanka Flösku með bensíni kastað í hús í Hafnarfirði Strætó hættir að bíða svo fólk þurfi ekki að bíða Lík hafi legið í námunda við aðra um klukkustundaskeið „Réttu spilin og réttu vopnin“ „Það er hetja á Múlaborg“ Hringir daglega í brotaþola og lykilvitni Faðir á Múlaborg í áfalli, leiðtogafundur í Washington og símtöl sakbornings Stjórnvöld þurfi að bregðast við veðmálavandanum Jarðskjálfti fjórum kílómetrum frá höfuðborgarsvæðinu Lögregla leitar manns vegna rannsóknar Vesturbæjarlaug aftur lokað vegna viðgerðar Auglýsingaskilti lýsti upp allan Garðabæ Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag Tollum Evrópusambandsins frestað um óákveðinn tíma Aukin gæsla og breytt snið á Menningarnótt Eldur á Kleppsvegi Starfsmaðurinn undir sérstöku eftirliti í fyrra Grétar Br. Kristjánsson lögmaður látinn Ögurstund í Washington, spilavandi ungra karla og aukin gæsla á Menningarnótt Fólk verði oft samdauna sérkennilegum aðstæðum í vinnunni „Þetta er stórt mál og tekur auðvitað tíma“ Sjá meira