Innlent

Hjartastopp í lögreglubíl vegna eiturlyfjaneyslu

Flest bendir til þess að maður sem lést eftir að hafa fengið hjartastopp í lögreglubíl nýverið, hafi látist vegna áhrifa eiturlyfja, en aðgerðir lögreglumanna hafi ekki átt þar neinn hlut að máli.

Þetta kom fram í tíu-fréttum ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Endanleg niðurstaða mun liggja fyrir eftir um það bil þrjár vikur.  Eins og fram hefur komið í fréttum Stöðvar 2 hafa lögreglumönnum borist líflátshótanir og því er lögreglunni í mun að dánarorsakir mannsins komist á hreint sem fyrst.   




Fleiri fréttir

Sjá meira


×