Lífið

Aron ólýsanlega stoltur af Bryndísi sem fæddi fallegt stúlkubarn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron og Bryndís búa saman í Bremen í Þýskalandi.
Aron og Bryndís búa saman í Bremen í Þýskalandi.
Aron Jóhannsson og Bryndís Stefánsdóttir eignuðust á dögunum fallegt stúlkubarn en Aron greinir frá því á Instagram og Twitter.

„Ótrúlega stoltur af Bryndísi fyrir að koma litlu prinsessunni okkar í heiminn, hana Ölbu Aronsdóttur. Móður og barni heilsast vel og við gætum ekki verið hamingjusamari,“ segir Aron á Instagram en hann er atvinnumaður í knattspyrnu og leikur með Werder Bremen og með bandaríska landsliðinu.

Saman býr parið í Bremen í Þýskalandi. Lífið óskar þeim innilega til hamingju með frumburðinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×