Fótbolti

Arnór Þór: Ég var smeykur um Aron Einar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Arnór Þór með systrum sínum í Annecy í Frakklandi, Ásu Maren og Huldu Maríu.
Arnór Þór með systrum sínum í Annecy í Frakklandi, Ásu Maren og Huldu Maríu. Vísir/Vilhelm
Arnór Þór Gunnarsson, landsliðsmaður í handbolta og bróðir landsliðsfyrirliðans Arons Einars Gunnarssonar, er mættur til Frakklands til að fylgja bróður sínum og íslenska karlalandsliðinu í fótbolta eftir á EM í Frakklandi.

Hann missti af fyrsta leiknum í Frakklandi þar sem að handboltalandsliðið var að spila við Portúgal í undankeppni HM 2017 á sama tíma. En hann sá leikinn gegn Ungverjalandi og verður á Stade de France í París í dag.

„Ég er auðvitað afar ánægður fyrir hans hönd og er stoltur af honum. Hann hefur gefið allt sem hann á í þetta,“ sagði Arnór Þór við Vísi í Annecy á dögunum.

Sjá einnig: Frændur Arons Einars: Hann lætur mann óspart heyra það

Hann segist vel gera sér grein fyrir því hvernig Aroni Einari líður, sérstaklega á leikdegi. Þá geti stundum verið erfitt að láta tímann líða.

„Það kemur upp mikill spenningur og fiðringur þegar maður vaknar á leikdegi. Hann og allir í liðinu vilja gera sitt besta, fyrir fjölskyldur sína, stuðningsmenn og alla á Íslandi. Þá fara taugarnar stundum af stað,“ sagði hann.

„En svo byrjar leikurinn. Þá er allt þetta farið og maður einbeitir sér algjörlega að leiknum.“

Bræðurnir Aron Einar og Arnór Þór.Vísir
Vill alltaf spila

Aron Einar hefur verið tæpur vegna nárameiðsla á mótinu og það stóð tæpt að hann myndi ná fyrsta leik Íslands, gegn Portúgal í síðustu viku.

„Jú, ég var smeykur. Hann sendi fjölskyldunni skilaboð um að hann væri illt í náranum en ætlaði að reyna að ná leiknum. En hann harkar þetta af sér. Hann hefur gert það hingað til,“ segir Arnór Þór.

„Ég hef ekki áhyggjur af því að hann sé að þjösna sér út. Hann myndi örugglega líka gera þetta með sínu félagsliði enda vill hann alltaf spila. Hann vildi alltaf spila þegar hann var yngri og var í bæði handbolta og fótbolta, sama þótt að honum hafi verið illt.“

Sjá einnig: Æfir alla daga í Frakklandi og reiknar með því að sá stutti verði dansari

Arnór Þór hefur ekki áhyggjur ef að Aron Einar myndi ekki getað spilað vegna meiðsla, til dæmis gegn Austurríki í dag.

„Við eigum fullt af góðum leikmönnum sem hafa verið fyrir utan lið. Við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því. Ef einhver getur ekki spilað þá koma frábærir leikmenn inn í staðinn.“

Szilagyi í leik með austurríska landsliðinu.vísir/getty
Hungaria, Hungaria

Viktor Szilagyi, samherji Arnórs Þórs hjá Bergischer í Þýskalandi, er besti handboltamaður sem Austurríki hefur átt en hann er reyndar fæddur í Ungverjalandi. Þeir voru í góðu sambandi eftir leikinn í Marseille.

„Hann sendi mér skilaboð. Hungaria, Hungaria. Ég var svo svekktur að ég gat ekki svarað honum strax. En við ræddum svo betur saman daginn eftir leik og fórum yfir þetta,“ segir hann brosandi.

Ekki missa af neinu sem gerist á EM í Frakklandi. Vísir er með hóp fjölmiðlamanna á mótinu sem færa ykkur allar nýjustu fréttirnar af strákunum okkar. Fylgdu okkur á Facebook, Twitter og Snapchat (sport365).


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×