Fréttir

Fréttamynd

Skipagöngin sam­þykkt eftir pólitísk hrossa­kaup

Skipagöngin við Stað í Noregi verða að veruleika eftir áratuga undirbúning og pólitískar deilur. Þetta varð ljóst eftir að minnihlutastjórn Verkamannaflokksins var niðurlægð með hrossakaupum í norska Stórþinginu við afgreiðslu fjáraukalaga í nýliðinni viku.

Fréttir

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Til­kynnt um tónlistarhávaða um allan bæ

Margt var um manninn og mikið um dýrðir í veislum gærkvöldsins en um það bil tvö þúsund og sjö hundruð háskólanemar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands. Lögreglan fékk ítrekaðar tilkynningar um tónlistarhávaða í Reykjavík en meðal annarra mála voru innbrot í hverfi 101 og líkamsárás þar sem þrír voru handteknir. Á Austurlandi voru ökumenn hins vegar til fyrirmyndar að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

250 skjálftar en enginn gos­ó­rói að svo stöddu

Jarðskjálftahrinu sem hófst í gærkvöldi upp úr klukkan 22:00 í kjölfar skjálfta, sem mældist um 4,8 að stærð, fylgir enginn gosórói að svo stöddu. Ríflega tvö hundruð og fimmtíu skjálftar voru mældir frá klukkan 22:00 og til klukkan 02:00 en þar af voru ellefu skjálftar yfir þremur að stærð.

Veður
Fréttamynd

Kominn með nóg af tíma­setningu lög­reglu

Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði segja það vekja furðu að lögreglan hafi ráðist í aðgerðir á skemmtistöðum á háannatíma sem leiddu til þess að þremur stöðum var lokað síðustu nótt. Samtökin geri ekki athugasemdir við sakargiftirnar en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum, að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri hlynntir en and­vígir sam­kvæmt nýrri könnun

Fleiri eru hlynntir en and­vígir því að Ís­land hefji aðildar­viðræður við Evrópu­sam­bandið sam­kvæmt nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir DV. Alls sögðust 44,5 pró­sent svar­enda vera hlynntir viðræðum en 39,4 pró­sent and­vígir. Á sama tíma svöruðu 14,6 pró­sent veit ekki og 1,5 pró­sent vildu ekki svara.

Innlent
Fréttamynd

Geir­dís geti leitað á tjald­svæði og greitt markaðs­verð

Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins, gefur lítið fyrir gagnrýni íbúa hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða sem sagðist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum þegar núverandi meirihluti borgarinnar rifti afnotasamningi. Samtök hjólabúa undirrituðu samninginn ásamt Heiðu Björgu Hilmisdóttur, fyrrverandi borgarstjóra, um landspildu í Gufunesi rétt fyrir kosningar. 

Innlent
Fréttamynd

Krapvélar í yfir­vinnu í góða veðrinu

Veðrið hefur sannarlega leikið við landmenn síðustu daga. Miðbærinn hefur verið þétt setinn og margir sjást þar með drykk við hönd. Framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar segir slíkt blíðskaparveður hafa áhrif á alla drykkjarsölu fyrirtækisins.

Innlent
Fréttamynd

Á­fall fyrir bæjar­fé­lagið

Sveitarstjóri á Vopnafirði segir nýlegar uppsagnir hjá fiskvinnslu Brims í bænum vera mikið áfall fyrir sveitarfélagið. Framkvæmdastjóri uppsjávarvinnslu hjá Brim segir uppsagnirnar hafa átt sér aðdraganda frá árinu 2018.

Innlent
Fréttamynd

„Okkur er gert að vera á­fram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“

Íbúar hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða eru margir hverjir mjög ósáttir eftir að borgarráð samþykkti á fundi sínum í vikunni að segja upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af landi í Gufunesi. Aðeins tveir mánuðir eru síðan samningurinn var undirritaður en meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Sanna Magdalena, borgarfulltrúi Vinstrisins, sem sagði uppsögnina ömurlega í færslu á Facebook.

Innlent
Fréttamynd

Lokað vegna skorts á starfs­leyfi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði þremur skemmtistöðum í nótt. Aðgerðirnar beindust að því að kanna rekstrarleyfi staðanna, auk starfsleyfa öryggisfyrirtækis. 

Innlent
Fréttamynd

„Af­leiðingarnar muni vara í ein­hver ár jafn­vel“

Alþjóðastjórnmálafræðingur segir langt frá því að friður sé í augnsýn á milli Bandaríkjanna og Íran þrátt fyrir drög að samkomulagi. Átök milli þjóðanna með tilheyrandi lokun Hormússunds og loftárásum Bandaríkjahers hafa staðið yfir síðan í lok febrúar. 

Erlent
Fréttamynd

Þrjár af­lýsingar hjá Icelandair

Boðað hefur verið til nýs fundar í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hjá ríkissáttasemjara. Þremur flugferðum Icelandair var aflýst í nótt og í morgun. Vélarnar áttu að koma til landsins frá Mílanó, Boston og New York.

Innlent
Fréttamynd

Við­gerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“

Enn eina ferðina hefur því að Herjólfur verði kominn í fullan rekstur á ný seinkað. Í þetta skiptið veldur framleiðsla á koparvír sem verður fluttur frá Tyrklandi til Hollands, þangað sem mótorinn er, því að viðgerð tefst. Áætlað var að viðgerðinni lyki í júní en nú er útlit fyrir að það verði um miðjan júlímánuð og er útlit fyrir að hrakföllum Herjólfs fari að linna.

Innlent
Fréttamynd

Til­gangs­laust stríð og æfir hjólabúar

Við förum yfir stöðuna í Íran en forsætisráðherra Pakistans sagði í gær að lokaorðalag friðarsáttmála hefði verið samþykkt af forsvarsmönnum Bandaríkjanna og Íran. Samkvæmt alþjóðastjórnmálafræðingi skila átökin litlu sem engu. Friður sé langt frá því að vera fastur í hendi.

Innlent
Fréttamynd

Hlað­varparar hrósa sigri: „Logi er greini­lega nettur gæi“

Vísir greindi frá því nú fyrir hádegi að Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hafi skorið hlaðvarpara úr snörunni. Þarna er meðal annars vísað til óánægju þeirra Þórarins Hjartarsonar, sem heldur úti hlaðvarpinu Ein pæling, og Ólafar Skaftadóttur, sem ásamt Kristínu Gunnarsdóttur rekur hlaðvarpið Komið gott.

Innlent
Fréttamynd

Sólin sleikir lands­menn

Víðast á landinu ætti að sjást til sólar í dag. Útlit er fyrir þokkalega hlýju en hitatölurnar eru á bilinu 11 til 18 stig. Veðurfræðingur segir fólk eiga að njóta blíðviðrisins meðan það er. 

Veður
Fréttamynd

Húð­læknir bregst við brúnkutískunni

Elísabet Reykdal, húð- og kynsjúkdómalæknir, segist gera skjólstæðinga sína hissa þegar hún útskýrir hvernig eigi að bera á sig sólarvörn. Mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á Íslandi yfir sumarmánuðina, jafnvel þó skýjað sé. Þá upplýsir Elísabet líka um besta ráðið til að verða brúnn skjótt án þess að skaða húðina.

Innlent
Fréttamynd

Á­fram bongó í kortunum og nú um allt land

Líkt og flestir á suðvesturhorninu hafa líklegast orðið varir við hefur blíðviðri leikið um landshlutann. Nú stefnir í að sólin teygi sig yfir allt land og þrátt fyrir þoku á norður- og austurströndinni spáir björtu og hægu veðri, en hiti fer mest upp í um átján stig í dag en nær tuttugu stigum á morgun og þá er spáð hlýjasta veðrinu á suðvestanverðu landinu.

Veður