Þetta fær Hildur í laun Heildarlaun Hildar Björnsdóttur borgarstjóra eru rétt tæpar þrjár milljónir króna á mánuði samkvæmt ráðningarsamnngi. Eins og áður hefur borgarstjóri embættisbifreið til umráða og á rétt á biðlaunum til sex mánaða. Innlent 15.6.2026 13:24
Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst Bretar ætla að banna börnum yngri en sextán ára að nota samfélagsmiðla. Sviðstjóri Netvís vill að sambærilegar reglur verði settar hér á landi sem fyrst. Innlent 15.6.2026 13:20
„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur þungar áhyggjur af samskiptum Íslands og Bandaríkjanna. Hún spurði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra út í stöðu mála hvað þau varðar og svörin sem Diljá Mist fékk voru ekki til þess fallin að minnka áhyggjur hennar, síður en svo. Innlent 15.6.2026 13:20
Engin þörf á aukaþingi í ágúst og veitingamenn ósáttir með vinnubrögð lögreglu Innlent 15.6.2026 11:37
Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Þrír voru handteknir við Valhallarbraut í Reykjanesbæ vegna stunguárásar í nótt. Í tilkynningu frá lögreglunni kemur fram að einn sé á spítala, en ekki í lífshættu, með stungusár. Innlent 15.6.2026 10:25
Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson, það sjöunda í röð nýrra björgunarskipa Slysavarnafélagsins Landsbjargar, kom til heimahafnar á Vopnafirði. Innlent 15.6.2026 09:05
Þingmenn á síðustu metrunum Þingfundur hefst klukkan hálfellefu í dag og eru alþingismenn á síðustu metrunum við að klára nokkur stór mál áður en þingið fer í sumarfrí. Innlent 15.6.2026 07:25
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Vopnað rán í Reykjavík Engan á að hafa sakað í vopnuðu ráni miðsvæðis í Reykjavík sem tilkynnt var um í gærkvöldi eða nótt. Ræningi er sagður hafa hótað manneskju með eggvopni. Innlent 15.6.2026 07:07
Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Landsréttur staðfesti sýknu Héraðsdóms Reykjavíkur í máli konu sem féll fyrir utan Háskólann í Reykjavík og krafðist bóta frá skólanum. Hún taldi að misfella í stéttinni væri á ábyrgð skólans en dómurinn féllst ekki á það. Innlent 14.6.2026 23:11
Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Doktor í hagfræði telur að upptaka evru gæti leitt atvinnuleysi yfir Íslendinga og kostnaðurinn sé því mun meiri en ábati kynni að vera. Hann segir atvinnuleysi afar dýrt fyrir þjóðina og hafi þung áhrif á ungt fólk. Innlent 14.6.2026 17:11
Óskiljanlegt að ráðuneytið skoði bara stöðu námsgagna í stærðfræði Þróunarsjóður námsgagna segir mennta- og barnamálaráðuneytið byrja á vitlausum enda með því að greina aðeins stöðu námsgagna í einni grein. Þörf sé á að leggja meira fjármagn í námsgagnagerð. Stjórn sjóðsins óttast að með því að greina aðeins eitt fag muni hin sitja eftir og staðan verði óbreytt. Innlent 14.6.2026 16:26
Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Anibal Hernandez er einn eigenda skemmtistaðarins Exit sem var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og skattsins aðfaranótt laugardags. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir lokunina og að dyraverðirnir sem nú starfi á staðnum starfi ekki hjá öryggisþjónustunni sem aðgerðirnar beindust gegn. Innlent 14.6.2026 15:18
Árekstur á Kársnesi Árekstur varð á þriðja tímanum á Hafnarbraut á Kárnesi í Kópavogi. Innlent 14.6.2026 15:06
Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Farþegabáturinn Skúlaskeið RE sem strandaði við sunnanverða Akurey við svokallað Músasund losnaði úr sjálfheldu um hálf þrjú og siglir nú aftur á eigin vélarafli til hafnar. Innlent 14.6.2026 14:56
Vill samfélagssáttmála vegna tómstundaiðkunar barna Þingmaður Flokks fólksins vill að gerður sé samfélagssáttmáli vegna kostnaðar við tómstundaiðkun barna. Tillhögur hóps sem vinnur að mótun aðgerða sem eiga að ná til barna í fátækt fara í samráðsgátt í lok mánaðarins. Innlent 14.6.2026 14:28
Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Í hádegisfréttum ræðum við við fyrrverandi varaformann Viðreisnar sem er nú formaður Samtaka iðnaðarins. Hann segir fjármálaáætlun Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra og núverandi varaformanns Viðreisnar, mikil vonbrigði. Innlent 14.6.2026 11:42
Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Um það bil 400 skjálftar mældust í kröftugri skjálftahrinu sem hófst um áttaleytið í Bárðarbungu í gær, sá stærsti 4,8 að stærð. Náttúruvársérfræðingur segir hrinurnar umfram hefbundna virkni í eldstöðinni. Því hafi verið tekin ákvörðun að færa fluglitakóðann á svæðinu upp á gulan. Innlent 14.6.2026 10:46
Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Í dag ræðir hann sagnfræðirannsóknir, upptöku evru, menntakerfið og málefni barna. Innlent 14.6.2026 09:57
Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Margt var um manninn og mikið um dýrðir í veislum gærkvöldsins en um það bil tvö þúsund og sjö hundruð háskólanemar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands. Lögreglan fékk ítrekaðar tilkynningar um tónlistarhávaða í Reykjavík en meðal annarra mála voru innbrot í hverfi 101 og líkamsárás þar sem þrír voru handteknir. Á Austurlandi voru ökumenn hins vegar til fyrirmyndar að sögn lögreglu. Innlent 14.6.2026 08:21
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Nýútskrifaður stúdent úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Abdallah Rúnar Awal, var ansi hissa þegar hringt var í hann frá skólanum nokkrum dögum eftir útskrift. Þá var honum greint frá því að vegna prentmistaka hafi viðurkenning fyrir stærðfræði sem hann átti að fá við ekki verið afhent við athöfnina. Innlent 14.6.2026 07:30
Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Um tveir mánuðir eru í að almyrkvi sjáist á hluta landsins. Vísindamiðlari segir þetta sögulegan viðburð sem beri að halda upp á og enginn eigi eftir að upplifa aftur. Að mörgu þurfi að huga og ekki sé sama hvenær fólk fari á salernið á þessum einstaka degi. Innlent 13.6.2026 22:39
Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Tveir jarðskjálftar mældust í Bárðarbungu upp úr klukkan átta í kvöld að stærð 2,6 og 4,8. Skjálftar af þessari stærð sjást nokkuð reglulega í Bárðarbungu, að sögn Veðurstofunnar. Fyrri skjálftinn mældist klukkan 20:10 og sá seinni klukkan 20:14. Innlent 13.6.2026 21:36
Límdu efnin á fætur sína Tveir voru dæmdir í þriggja ára fangelsi fyrir innflutning á tveimur og hálfu kílói af kókaíni. Málinu var áfrýjað til Landsréttar sem staðfesti dóm Héraðsdóms Reykjaness. Innlent 13.6.2026 21:23
Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði segja það vekja furðu að lögreglan hafi ráðist í aðgerðir á skemmtistöðum á háannatíma sem leiddu til þess að þremur stöðum var lokað síðustu nótt. Samtökin geri ekki athugasemdir við sakargiftirnar en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum, að sögn lögreglu. Innlent 13.6.2026 20:58
Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Fleiri eru hlynntir en andvígir því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið samkvæmt nýrri könnun sem Maskína gerði fyrir DV. Alls sögðust 44,5 prósent svarenda vera hlynntir viðræðum en 39,4 prósent andvígir. Á sama tíma svöruðu 14,6 prósent veit ekki og 1,5 prósent vildu ekki svara. Innlent 13.6.2026 18:10