Viðskipti erlent

Apple og Google ná ekki að græða á klúðri Samsung

Sæunn Gísladóttir skrifar
Samsung hefur þurft að endurkalla milljónir eintaka af Galaxy Note 7.
Samsung hefur þurft að endurkalla milljónir eintaka af Galaxy Note 7. Vísir/Getty
Apple og Google hafa ekki náð að nýta sér gallann á Samsung Galaxy Note 7 til að selja meira af sínum símum vegna framleiðsluskorts. Financial Times greinir frá þessu.

Eins og Vísir hefur greint frá hefur Samsung, stærsti snjallsímaframleiðandi heims, þurft að innkallað milljónir Note 7 snjallsíma, einungis vikum eftir útgáfu þeirra. Símarnir hafa sprungið í tugatali og kviknað hefur í þeim þegar þeir hafa verið settir í hleðslu.

Sjá einnig: Klúður Samsung er himnasending Apple

Margir töldu að innköllun Samsung væri algjör himnasending fyrir helsta samkeppnisaðila Samsung, Apple. Í september í kjölfar fréttanna af springandi símum rauk markaðsvirði Apple upp.  Samsung Galaxy Note 7 hafði verið vel tekið af gagnrýnendum og notendum og var líklegur til að seljast mjög vel. Á meðan hvert vandamál komu upp eitt á eftir öðru hjá Samsung steig Apple fram og kynnti tvo nýja síma. iPhone 7 og 7 Plus.

Samkvæmt greiningu Financial Times hafa Apple og Google, sem framleiðir Android síma, þó ekki geta fyllt upp í eftirspurnargatið vegna framleiðsluvanda. Apple tilkynnti í gær, þegar afkoma á fjórða ársfjórðungi var kynnt, að eftirspurn eftir iPhone 7 Plus hefði verið meiri en framboð og að nú sé átta vikna bið að meðaltali eftir símanum.

Nýju Pizel símar Google hafa fengið góðar umsagnir og töldu margir að viðskiptavinir gætu keypt þá í stað Galaxy Note 7, en sömu er sögu er að segja hjá því fyrirtæki og Apple. Forsvarsmaður Google sagði í samtali við Financial Times að eftirspurn í forsölu væri meiri en framboð, því væri verið að reyna að bæta við framboðið sem fyrst.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×