Viðskipti erlent

Apple hættir netsölu í Rússlandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Apple hækkaði verð á vörum sínum um 20 prósent í síðustu viku.
Apple hækkaði verð á vörum sínum um 20 prósent í síðustu viku. Vísir/AFP
Tæknirisinn Apple hefur hætt allri netsölu í Rússlandi á iPhone símum, iPad spjaldtölvum og öðrum vörum og segir gengi rúblunnar of lágt til að salan borgi sig. Gengi gjaldmiðils Rússlands hefur lækkað um 20 prósent í vikunni þrátt fyrir að stýrivextir hafi verið hækkaðir úr 10,5 prósentum í 17 prósent.

Apple hækkaði verð á vörum sínum um 20 prósent í síðustu viku eftir að fall rúblunnar gerði vörnunar ódýrari en annarsstaðar í Evrópu.

Hér má sjá gengi dollara gagnvart rúblu með tilliti til refisaðgerða Vesturveldanna gegn Rússlandi.Vísir/GraphicNews
BBC segir frá því að Seðlabanki Rússlands hafi tilkynnt í morgun að hann hefði sett nærri því tvo milljarða dala til að grípa inn í á gjaldeyrismarkaðinum. Það sem af er þessu ári hafa yfirvöld í Moskvu varið um 80 milljörðum í að styrkja rúbluna. Þrátt fyrir það hefur hún tapað rúmlega helmingi verðgildis síns gagnvart dollaranum frá því í janúar.

Hér má sjá þróun gengis rúblunnar gagnvart dollaranum.

Seðlabankinn hefur heitið frekari aðgerðum til styrktar rúblunni en yfirvöld þar hafa viðurkennt að ástandið sé alvarlegt. Ástæða gengishrunsins er sögð vera hugmyndir um hertar viðskiptaþvinganir gegn Rússum út af ástandinu í Úkraínu og stuðningi þeirra við aðskilnaðarsinna.


Tengdar fréttir

Mikil verðbólga í Rússlandi

Verðbólga hækkar sífellt í Rússlandi og lækkandi verð rúblunnar hefur leitt til þess að Rússar sanka að sér mat og taka peninga sína út úr bönkum.

Rússar hækka stýrivextina

Rússnesk stjórnvöld ákváðu í nótt að hækka stýrivexti landsin um heil 6,5 prósentustig eða úr 10,5 prósentum í sautján prósent.

Rúblan heldur áfram að hríðfalla

Rússneski seðlabankinn hækkar stýrivexti í 17 prósent á sama tíma og verð á olíu, helstu útflutningsafurð landsins, heldur áfram að lækka.

Gengið hefur sigið hratt

Hröð og mikil verðlækkun á olíu hefur orðið þess valdandi að norska krónan tapar verðgildi sínu jafnt og þétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×