Enski boltinn

Álvaro Negredo lánaður til Valencia

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Álvaro Negredo.
Álvaro Negredo. vísir/getty
Manchester City lánaði spænska framherjann ÁlvaroNegredo til Valencia í kvöld, en aðeins er eitt ár síðan City keypti hann frá Sevilla fyrir 17 milljónir punda.

Negredo skoraði níu mörk í 32 leikjum fyrir meistara Manchester City á síðustu leiktíð en er nú mættur aftur í efstu deildina á Spáni.

Negredo verður á láni hjá Valencia út leiktíðina, en spænska liðið barðist við að ganga frá samningnum allt þar til glugganum var lokað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×