Innlent

Alvarlegur kynjahalli innan kirkjunnar

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/arnþór
Félag prestsvígðra kvenna hefur sent frá sér ályktun þess efnis að þegar litið er á kynjahlutfall í embættum og ábyrgðastöðum innan kirkjunnar komi alvarlegur kynjahalli í ljós. Níutíu sóknarprestsembætti eru á landinu og þar af eru konur í tuttugu og þremur embættum, eða um fjórðungur sóknarpresta.

Félagið minnir á að þegar valið er í embætti prests eða sóknarprests er ekki nóg að horfa til sóknarinnar einnar, heldur ber að taka mið af kynjahlutfalli innan kirkjunnar, þar með talið í prófastsdæminu og á samstarfssvæðinu.

„Það er fagnaðarefni að í ár eru 40 ár frá því að fyrsta konan vígðist til prestsembættis innan þjóðkirkjunnar. Það hefur auðgað og eflt kirkju og kristni í landinu að hafa prestvígt fólk af báðum kynjum. Það er hagur kirkjunnar að hlutföll karla og kvenna í störfum og ábyrgðarstöðum séu jöfn,“ segir í tilkynningu Félags prestsvígðra kvenna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×