Formúla 1

Alonso og Hamilton fljótastir á föstudegi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Spánverjinn er oft snöggur á æfingum en svo virðist lítill kraftur í honum eftir það.
Spánverjinn er oft snöggur á æfingum en svo virðist lítill kraftur í honum eftir það. Vísir/Getty
Fernando Alonso á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir Singapúr kappaksturinn sem fram fer um helgina. Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á þeirri seinni.

Lítið var um uppákomur á fyrri æfingunni. Hún gekk vel fyrir sig. Nico Rosberg á Mercedes varð þriðji og Sebastian Vettel á Red Bull varð fjórði. Þá eru taldir allir sem voru innan við sekúndu á eftir Alonso.

Daniel Ricciardo á Red Bull varð fimmti, fyrrum liðsfélagi hans hjá Toro Rosso, Jean-Eric Vergne sem enn ekur fyrir liðið varð sjötti. Vergne hefur þar með staðið að vissu leyti við yfirlýsingar gærdagsins. Hann sagði að hann hefði staðið sig jafn vel og Ricciardo hefði hann fengið tækifærið hjá stóra liðinu.

Bíll Maldonado eftir samstuð við varnarvegg.Vísir/AFP
Á seinni æfingunni var Hamilton fljótstur en Alonso annar, Ricciardo þriðji og Kimi Raikkonen á Ferrari fjórði. Vettel varð fimmti og Kevin Magnussen og Jenson Button á McLaren urðu sjöttu og sjöundu hröðustu. Button sá síðasti sem komst innan við sekúndu frá tíma Hamilton.

Pastor Maldonado skaffaði dramatík eins og honum einum er lagið. Hann Lenti í harkalegu samstuði við varnarvegg sem olli milum skemmdum á Lotus bíl hans.

Tímatakan fer fram á morgun og bein útsending hefst á Stöð 2 Sport klukkan 12:50. Keppnin sjálf fer svo fram á sunnudag og þá hefst útsending á Stöð 2 Sport klukkan 11:30.


Tengdar fréttir

FIA bannar frammistöðuskilaboð

FIA, alþjóða akstursíþróttasambandið hefur ákveðið að banna öll frammistöðutengd skilaboð í talstöðvum liðanna til ökumanna. Bannið mun taka gildi fyrir keppnina í Singapore, næstu helgi.

Ecclestone: Enn of auðvelt fyrir ökumenn

Bernie Ecclestone, einráður Formúlu 1, hefur sagt að sér þyki starf ökumanna enn of auðvelt. Hann vill að akstur Formúlu 1 bíla verði meiri áskorun.

Prodromou kominn aftur til McLaren

Peter Prodromou hefur snúið aftur til starfa hjá McLaren eftir átta ár í herbúðum Red Bull. Þar starfaði hann við hlið hönnunargúrúsins Adrian Newey.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×