Innlent

Allt sem þú þarft að vita fyrir forsetakosningarnar á morgun

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Alls eru níu manns í framboði. Fyrstu tölur úr kosningunum ættu að liggja fyrir um og upp úr klukkan 23.
Alls eru níu manns í framboði. Fyrstu tölur úr kosningunum ættu að liggja fyrir um og upp úr klukkan 23. vísir
Kosið verður til embættis forseta Íslands á morgun. Kjörstaðir verða opnaðir klukkan níu og loka klukkan 22, en kjörstjórnir geta ákveðið að byrja síðar og hætta fyrr. Tölur ættu að verða ljósar á fyrsta klukkutímanum eftir að kjörstaðir loka, eða um klukkan 23.

Alls eru 245.004 kjósendur á kjörskrá og er fjöldi karla og kvenna svo til jafn. Kjósendur með lögheimili erlendis eru 5,3 prósent kjósenda eða 13.077 talsins.

Hvar á að kjósa?

Kjósendur geta kannað hvar þeir eru á kjörskrá með því að slá inn kennitölu sína á þar til gerðri vefsíðu á vegum innanríkisráðuneytisins. Kjósendur eru á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem þeir eiga skráð lögheimili þremur vikum fyrir kjördag, þann 4. júní 2016.

Allir íslenskir ríkisborgarar, átján ára og eldri, eru með kosningarétt. Þá eru íslenskir ríkisborgarar sem hafa haft lögheimili erlendis skemur en átta ár, talið frá 1. desember 2015, sjálfkrafa með kosningarétt á Íslandi. Hins vegar verða Íslendingar sem hafa haft lögheimili erlendis lengur en átta ár að sækja um til Þjóðskrár Íslands að verða teknir á kjörskrá.

Erlendir ríkisborgarar eru ekki með kosningarétt við kjör forseta Íslands. Eina undantekningin eru danskir ríkisborgarar sem voru búsettir á Íslandi 6. mars 1946 eða einhvern tímann á síðustu tíu árum fyrir þann tíma.

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram í Perlunni í Öskjuhlíð, en þar er opið til klukkan 22 í kvöld. Á morgun, kjördag, verður opið í Perlunni á milli klukkan 10 og 17 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins.

Hvernig fer atkvæðagreiðslan fram?

Framvísa þarf skilríkjum þegar komið er á kjörstað. Rita á kross framan við nafn þess frambjóðanda sem hver og einn hyggst kjósa, en athuga þarf að ekki má rita neitt annað á kjörseðilinn eða gera á honum breytingar. Slíkt getur ógilt seðilinn.

Fleira getur ógilt seðilinn. Ef einhver sér hvað er á kjörseðlinum áður en hann er settur í kjörkassann er seðillinn ónýtur, en þá á kjósandi rétt á að fá nýjan seðil og fara aftur inn í kjörklefa. Hið sama gildir ef einhver mistök hafa verið gerð við ritun á kjörseðilinn. Þá þarf að skila kjörstjórn fyrri seðlinum.

Þá er ekki leyfilegt að taka myndir af seðlinum, en dæmi eru um að fólk hafi birt slíkar myndir á samfélagsmiðlum. Þeir sem gerast uppvísir af því að birta myndir af kjörseðlinum gætu átt sekt yfir höfði sér, en fréttastofu er ekki kunnugt um hvort fólk hafi í raun og veru sektað fyrir athæfið.

Um er að ræða brot gegn 85.grein laga þar sem fram kemur að kjósandi skuli gæta þess að enginn geti séð hvernig hann greiddi atkvæði.

Er hægt að fá aðstoð við að kjósa?

Spjald með blindraletri með upphleyptu nafni hvers frambjóðanda er að finna í klefanum. Þeir sem ekki geta merkt sjálfir við á kjörseðlinum sínum vegna sjónleysis eða þess að þeir geta ekki notað höndina til að fylla út kjörseðilinn, rétt á aðstoð í kjörklefa. Kjósandi getur þá tilnefnt einn út kjörstjórninni til að veita sér aðstoð eða óskað eftir því að fulltrúi sem hann hefur valið sjálfur aðstoði sig.

Hvar verða kosningavökurnar?

Alls eru níu manns í framboði, en frambjóðendur eru eftirfarandi:



  • Andri Snær Magnason
  • Ástþór Magnússon
  • Davíð Oddsson
  • Elísabet Jökulsdóttir
  • Guðni Th. Jóhannesson
  • Guðrún Margrét Pálsdóttir
  • Halla Tómasdóttir
  • Hildur Þórðardóttir
  • Sturla Jónsson
Frambjóðendurnir munu allir halda kosningavöku annað kvöld og verður gestum og gangandi boðið að koma, en þær hefjast allar á milli klukkan 21 og 22.

Andri Snær verður með kosningavöku í Iðnó og Ástþór Magnússon hyggst halda bænastund í kirkju Óháða safnaðarins. Davíð Oddsson verður í kosningamiðstöð sinni við Grensásveg 10, Guðni Th. Jóhannesson á Grand Hóteli og Guðrún Margrét heldur sína kosningavöku á heimili sínu við Kríunes 6.

Þá verður Halla Tómasdóttir á Bryggjunni brugghúsi að Grandagarði 8, og Hildur Þórðardóttir í fundarsal í Sundaborg 1. Elísabet Jökulsdóttir hefur ekki ákveðið hvar hennar kosningavaka verður og ekki hafa fengist upplýsingar um hvar kosningavaka Sturlu Jónssonar verður haldin.

Innanríkisráðuneytið hefur útbúið leiðbeiningamyndband með öllum helstu upplýsingum um atkvæðagreiðsluna. Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Presidential Election in Iceland 2016: Video instructions - Absentee Voting:

Tengdar fréttir

Líkur á dræmri kjörsókn vegna EM

Kjörsókn hefur hrapað á síðustu árum. Horfur eru taldar á að kjörsókn í forsetakosningum á morgun verði í sögulegu lágmarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×